Fjárlög 2005.
Jónína Bjartmarz (F) (andsvar):
Herra forseti. Á sama hátt og hv. þm. Össur Skarphéðinsson heldur því fram að ég hafi farið rangt með tölur leyfi ég mér að halda því sama fram um hv. þm. Össur Skarphéðinsson. (ÖS: Þrjú og hálft prósent.) Mig langar að minna hv. þingmann á að þegar hann sat í ríkisstjórn, samkvæmt töflum sem ég hef lesið, lækkuðu framlög til barnabóta um heilan milljarð. (ÖS: Tíu milljarðar.) Bara svo að við höldum sumum tölum til haga, sem ég held að ég og hv. þm. Össur Skarphéðinsson gætum orðið sammála að séu réttar. (ÖS: Þið tókuð 10 milljarða kr.) Hvað varðar loforðið við öryrkja, herra forseti, get ég ekki annað sagt en að í allri kosningabaráttunni talaði sú sem hér stendur aldrei um annað en milljarð (ÖS: Þið lofuðuð að hækka …) til þess að tvöfalda lífeyrinn til yngstu öryrkjanna. Öðru var aldrei lofað.
Það segir mest, herra forseti, um málefnafátækt formanns Samfylkingarinnar að hann skuli, aftur og aftur í þessum ræðustól í dag, aldrei geta fjallað um eigin stefnu eða þá framtíð sem hann sá fyrir sér í síðustu kosningunum þegar hann lofaði 20 milljörðum kr. og hátt í 30 milljörðum kr. Hann þarf heldur að leggjast í matarskattinn.
Ég ætla að endurtaka það enn og aftur úr þessum ræðustól að Framsóknarflokkurinn hefur aldrei sett sig gegn því að lækka matarskattinn en það hentar hv. formanni Samfylkingarinnar vel að halda því fram vegna þess að málefnastaða hans er ekki betri en hún er. Talandi í öðru orðinu um þensluáhrifin sem menn gátu séð fyrir að yrðu af stóriðjuframkvæmdunum, líka hv. formaður Samfylkingarinnar, minnist hann ekkert á síðasta vor þegar hann var stórkarlalegur með kosningaloforð sín.
Ekkert hefur breyst af því sem menn gátu séð fyrir á þeim tíma. Þar fyrir utan mætti ætla manni sem verið hefur jafnlengi í pólitík og hv. þingmaður að sýna meiri framsýni að öllu jöfnu.