131. löggjafarþing — 40. fundur,  26. nóv. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[11:08]

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Með þessari tillögu er Alþingi að framfylgja þeirri þingsályktun sem samþykkt var fyrir rúmu ári síðan um að koma á sérstökum skógræktarverkefnum. Með þeirri tillögu var lögð fram fjárhagsáætlun og eins kom fram að hún skyldi fylgja verðlagsbreytingum. Tillagan lýtur að því að fylgja eftir þeirri þingsályktun sem Alþingi samþykkti um skógræktarátak.