131. löggjafarþing — 41. fundur, 29. nóv. 2004.
Varamaður tekur þingsæti.
[15:01]
Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá hv. 10. þm. Norðvest., Sigurjóni Þórðarsyni, dagsett 5. nóvember:
„Þar sem ég fer í fæðingarorlof í tvær vikur frá og með 29. nóvember 2004 óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varaþingmaður Frjálslynda flokksins í Norðvest., Steinunn K. Pétursdóttir, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“
Steinunn K. Pétursdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.