131. löggjafarþing — 41. fundur,  29. nóv. 2004.

Skipting tekna milli ríkis og sveitarfélaga í ljósi nýgerðra kjarasamninga.

[15:35]

félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (F):

Hæstv. forseti. Ríkisvaldið hefur að undanförnu sannarlega komið til móts við óskir sveitarfélaga um auknar tekjur. Á síðustu árum hafa tekjustofnar sveitarfélaga verið styrktir verulega, m.a. með hækkun útsvarsheimilda og auknu framlagi ríkisins í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Að tillögu tekjustofnanefndar sem lauk störfum á árinu 2000 voru útsvarsheimildir rýmkaðar með hækkun hámarksútsvars. Hækkun útsvarsins hefur skilað sveitarfélögum tekjuauka sem nemur vel yfir 5 milljörðum kr. á ári miðað við núverandi verðlag.

Þá hefur framlag ríkissjóðs í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga aukist umtalsvert á síðustu árum, að hluta til vegna aukinnar hlutdeildar í skatttekjum ríkissjóðs en einnig vegna þess að ríkissjóður tók á sig tekjuskerðingu sveitarfélaga á landsbyggðinni þegar breytingar voru gerðar á viðmiði fasteignaskatts árið 2000. Ríkissjóður hefur auk þess veitt samtals 2,9 milljarða kr. í viðbótarframlög til jöfnunarsjóðs frá árinu 1999, nú síðast með 400 millj. kr. framlagi sem úthlutað verður sérstaklega til þeirra sveitarfélaga sem standa höllum fæti fjárhagslega. Einnig má minna á að ríkissjóður hefur veitt um 200 millj. kr. á ári í stuðning til sveitarfélaga vegna fráveituframkvæmda.

Undanfarnar vikur hafa einnig verið gerðar ýmsar breytingar á fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga sem ýmist munu spara sveitarfélögunum árleg útgjöld eða auka við þá fjármuni sem jöfnunarsjóður hefur til ráðstöfunar.

Með frumvarpi til breytinga á lögum um húsnæðismál eru felld á brott ákvæði um ábyrgðir sveitarfélaga á viðbótarlánum með framlagi úr varasjóði viðbótarlána. Miðað við áætlun um viðbótarlán á þessu ári er um að ræða nálægt 300 millj. kr. lækkun á útgjöldum sveitarfélaganna ár hvert. Í frumvarpinu eru einnig ákvæði sem heimila að raunvextir á höfuðstóli varasjóðs viðbótarlána verði veittir til aukningar á söluframlögum vegna félagslegs íbúðarhúsnæðis. Áætlað er að hér geti verið um að ræða a.m.k. 60 millj. kr. árlega.

Í frumvarpi til breytinga á lögum um Lánasjóð sveitarfélaga eru felld á brott ákvæði um framlag jöfnunarsjóðs til lánasjóðsins. Hér er um að ræða ríflega 250 millj. kr. árlega sem jöfnunarsjóðurinn getur þá nýtt til hækkunar á öðrum framlögum sjóðsins.

Hæstv. forseti. Samtals er hér um að ræða ríflega 600 millj. kr. á ári. Það er því fráleitt að halda því fram að ríkið hafi ekkert gert til að laga fjárhagsstöðu sveitarfélaganna.

Eins og margoft hefur komið fram undirritaði ég ásamt fjármálaráðherra og formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga viljayfirlýsingu í september sl. Þar er m.a. kveðið á um að meðal verkefna tekjustofnanefndar sé að skoða sérstaklega þau sveitarfélög á svæði sem standa höllum fæti fjárhagslega. Nefndin skal jafnframt meta ástæður fyrir þeim vanda og gera tillögur sem leitt geta til úrbóta. Í þessu felst viðurkenning á því að sveitarfélögin í landinu standa misjafnlega að vígi fjárhagslega og að rétt sé að fram fari skoðun á vanda þeirra sveitarfélaga. Ríki og sveitarfélög eru sammála um að þeirri vinnu verði hraðað eins og kostur er. Að sama skapi er eðlilegt að niðurstöður tekjustofnanefndar liggi fyrir áður en rætt er um varanlegar aðgerðir til að bregðast við vanda.

Í viljayfirlýsingunni frá því í september eru nefnd ýmis atriði sem stjórnarandstaðan hefur minna rætt um. Eitt þeirra er að með henni eru tryggðir fjármunir í gegnum jöfnunarsjóð til að aðstoða einstök sveitarfélög við sameiningu. Er þar um að ræða allt að 2,4 milljarða kr. á næstu fimm árum sem m.a. verður veitt í skuldajöfnunarframlög. Þar eru miklir fjármunir á ferðinni sem ættu að hvetja sveitarfélög til sameiningar.

Í tekjustofnanefnd hafa einnig verið ræddar ýmsar áhugaverðar leiðir sem miða að því að hemja útgjaldavöxt hjá sveitarfélögunum og koma á aukinni formfestu í samstarfi og samráði ríkis og sveitarfélaga. Meðal annars hefur verið rætt um aukið vægi eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og mikilvægi þess að þessi tvö stjórnsýslustig, ríki og sveitarfélög, komi sér saman um langtímamarkmið í efnahagsstjórn og aðgerðir til að hefta útgjöld hins opinbera. Ég tel mjög mikilvægt að menn haldi áfram á þessari braut, þ.e. að leita leiða til að leysa fjárhagsvanda sveitarfélaga án þess að auka heildarútgjöld hins opinbera.

Hæstv. forseti. Það er ekki hægt að stökkva til þess að endurskoða tekjustofna sveitarfélaga á nokkurra ára fresti og bæta við milljörðum kr. í hvert sinn. Ríki og sveitarfélög verða að eiga reglulegt samráð sem er í gagnsæjum farvegi. Þetta er hagsmunamál okkar, bæði ríkis og sveitarfélaga. Við verðum að horfa á hlutina í samhengi. Við erum að tala um sömu íbúana, sömu hagsmunina, sama heildarreikninginn. Menn mega ekki slíta hlutina í sundur og úr samhengi eins og allt of oft er gert. Við megum ekki leyfa okkur slíka nálgun.

Ríkissjóður er ekkert ótæmandi og ef endalaust er gengið í hann er aðeins hægt að brúa bilið með því að seilast í vasa skattgreiðenda. Við verðum að horfa heilstætt á þjóðarbúskapinn og taka höndum saman um að hemja vöxt opinberra útgjalda.