Skipting tekna milli ríkis og sveitarfélaga í ljósi nýgerðra kjarasamninga.
Jón Bjarnason (Vg):
Herra forseti. Á nýafstöðnu landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið var föstudaginn 26. nóvember sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða, með leyfi forseta:
„XVIII. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, haldið 26. nóvember 2004, lýsir fullum stuðningi við störf fulltrúa sambandsins í tekjustofnanefnd og hvetur ríkisvaldið til þess að koma á móts við sjónarmið þeirra í nefndinni.
Landsþingið telur að ekki séu forsendur til þess að færa ný verkefni til sveitarfélaga fyrr en núverandi tekjustofnar þeirra hafa verið styrktir með hliðsjón af þeim lögskyldu og venjubundnu verkefnum sem þeim ber að sinna.“
Ég hygg að mörgum hafi þótt þetta vera hógværlega til orða tekið en þó fast og ákveðið, ekki síst í ljósi þess að tekjustofnanefndin hefur nánast verið óstarfhæf nú í meira en hálft ár vegna stífni af hálfu ríkisvaldsins. Það að etja sveitarfélögum áfram í sameiningarviðræður undir því yfirskini að það eigi að ná fram hagræðingu í rekstri og að hægt sé að flytja ný verkefni til þeirra er fullkomin óráðsía gagnvart sveitarfélögunum eins og þau nú standa.
Sveitarfélögunum er mikilvægt nú að beita öllum kröftum sínum til að ná viðunandi niðurstöðu í samningum við ríkisvaldið um réttláta skiptingu tekna og gjalda til þeirra verkefna sem nú eru þegar á borðum og ábyrgð sveitarfélaganna. Þetta samband ríkis og sveitarfélaga þar sem ríkið telur sig geta svelt sveitarfélögin á eigin forsendum, geta skammtað þeim úr hnefa á eigin forsendum, er í hæsta máta óeðlilegt, ósanngjarnt og fullkomlega siðlaust. Þessir aðilar tveir, ríki og sveitarfélög, bera sameiginlega ábyrgð á þeim verkefnum sem við viljum að samfélagið axli og vinni sameiginlega (Forseti hringir.) að og þar á ekki annar að vera húsbóndinn yfir hinum.