Skipting tekna milli ríkis og sveitarfélaga í ljósi nýgerðra kjarasamninga.
Steinunn K. Pétursdóttir (Fl):
Virðulegur forseti. Líklega hefur flest það sem ég hafði hugsað mér að minnast á í þessari umræðu í dag komið fram en við vitum það öll, og sennilega hæstv. forseti manna best, að sjaldan er góð vísa of oft kveðin.
Það er fullljóst að efla þarf núverandi tekjustofna sveitarfélaganna til muna eða hugsanlega fjölga þeim til að þau geti sinnt þeim verkefnum sem þeim er ætlað samkvæmt lögum. Komið hefur fram í þessari umræðu að stór hluti sveitarfélaga er rekinn með halla af ýmsum ástæðum og sýnt þykir að rekstrarvandi þeirra muni ekki leysast nema með aðkomu ríkisvaldsins. Líklegt er að félagsmál margs konar muni í auknum mæli færast inn á borð sveitarfélaganna þó að ljóst sé að þau geti alls ekki tekið við nýjum verkefnum nema tekjustofnar þeirra verði efldir.
Líklega vegur þyngst rekstur grunnskólanna en við þeim rekstri tóku sveitarfélögin af ríkinu án þess að tryggt væri að tekjustofnar sem ætlaðir voru til verksins væru nægjanlegir.
Áætluð er fækkun sveitarfélaga úr rétt um 100 í liðlega 40, eins og komið hefur fram. Almennt eru íbúar landsbyggðarinnar jákvæðir gagnvart sameiningum en á hinn bóginn er lítill sem enginn áhugi á að taka við auknum verkefnum fyrr en núverandi tekjuskipting hefur verið leiðrétt. Það er fullljóst að bregðast þarf við þeim mikla vanda sem blasir við fyrr en síðar og tvímælalaust þarf að aðstoða verst settu sveitarfélögin sem fyrst, og það áður en rætt er um frekari sameiningar.
Lausn fjárhagsvandans felst ekki í því að sameina. Lausnin felst í styrkingu þeirra tekjustofna sem sveitarfélögin hafa nú þegar og þar undan getur ríkisstjórnin ekki skotið sér.