131. löggjafarþing — 41. fundur,  29. nóv. 2004.

Lífeyrsissjóður sjómanna.

376. mál
[16:57]

fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um afnám hinna sérstöku laga nr. 45/1999, um Lífeyrissjóð sjómanna.

Á undanförnum árum hefur annað slagið komið til skoðunar og umræðu, jafnvel hér á Alþingi, hvort þörf væri fyrir sérstök lög um Lífeyrissjóð sjómanna og hefur fram komið sú skoðun að það gæti staðið sjóðnum fyrir þrifum að reglur um hann væru bundnar í sérstök lög. Í ljósi þess að sjóðurinn er um flest eðlislíkur öðrum lífeyrissjóðum verður að telja eðlilegra að hann starfi á grundvelli hinna almennu laga um þessi málefni, nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og síðan sinna eigin samþykkta eins og flestir lífeyrissjóðir gera. Athugun fjármálaráðuneytisins hefur leitt það í ljós að þetta væri hin heppilegasta skipan hvað varðar málefni Lífeyrissjóðs sjómanna.

Því er við að bæta, virðulegi forseti, að ráðuneytinu hefur borist erindi frá Lífeyrissjóði sjómanna þess efnis að farið er fram á að ráðuneytið beiti sér fyrir afnámi þessara laga. Í samræmi við framangreint er með frumvarpi þessu lagt til að lögin nr. 45/1999, um Lífeyrissjóð sjómanna, verði afnumin. Hygg ég að þessu máli tengist áform á vegum lífeyrissjóðsins um að sameinast hugsanlega öðrum öflugum lífeyrissjóði í framtíðinni.

Ég vil láta þess getið að í núgildandi lögum um Lífeyrissjóð sjómanna kemur fram að iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda skuli hvíla sem svokallað lögveð á hlutaðeigandi skipi og ganga þannig fyrir öllum öðrum veðum. Ákvæðið kom upphaflega inn í lög um Lífeyrissjóð togarasjómanna, nr. 49/1958, með breytingu sem gerð var með lögum nr. 34/1960. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur sú sérstaða lífeyristrygginga sjómanna, að hafa á þeim tíma verið lögboðin, skipt sköpum við afgreiðslu ákvæðisins um lögveð á sínum tíma.

Frá gildistöku framangreinds lagaákvæðis um lögveð hefur mikið vatn runnið til sjávar í lífeyrismálum hér á landi. Þannig hefur á grundvelli allsherjarsamkomulags aðila vinnumarkaðarins náðst sátt um skipan lífeyriskerfis fyrir alla launamenn í landinu. Um það efni gilda nú lögin sem ég gat um áðan, þ.e. lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Er nú svo komið að öllum launamönnum er skylt að greiða í lífeyrissjóð af launum sínum og framangreind sérstaða lífeyristryggingar togarasjómanna því ekki lengur fyrir hendi. Á undanförnum árum hafa verið settar almennar reglur um innheimtu lífeyrisiðgjalda og ábyrgð á vangoldnum iðgjöldum við gjaldþrot vinnuveitanda. Í almennu lífeyrislögunum er sérstaklega fjallað um eftirlit með greiðslu iðgjalda en ríkisskattstjóraembættið skal hafa með höndum eftirlit með því að lífeyrisiðgjald sé greitt vegna hvers manns sem skyldutrygging lífeyrisréttinda nær til. Þá er þess að geta að samkvæmt ákvæðum laga um Ábyrgðasjóð launa, njóta kröfur lífeyrissjóðs um lífeyrisiðgjöld, sem fallið hafa í gjalddaga á ábyrgðartímabilinu, ábyrgðar sjóðsins. Samkvæmt framansögðu þykja því ekki vera rök til þess að viðhalda umræddu ákvæði um lögveð. Því er lagt til að það falli brott með afnámi laganna um Lífeyrissjóð sjómanna, en um það efni gildi þá hin almennu lagaákvæði í lögunum um skyldutryggingu lífeyrissjóða og starfsemi lífeyrissjóða.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði að umræðunni lokinni vísað til 2. umr. og hv. efnahags- og viðskiptanefndar.