Lífeyrissjóður sjómanna.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég held því ekki fram að ég viti alla skapaða hluti um Lífeyrissjóð sjómanna en hv. þm. spurði áðan um ávöxtunina og hvernig sjóðurinn hefði ávaxtað sig. Ávöxtunin á þessu ári stefnir sennilega í að vera góð, hún var góð á síðasta ári og á árinu þar áður en mjög slök tvö ár þar á undan, ef ég man rétt. En það er talið að lífeyrissjóðir þurfi að meðaltali að vera með 3,5–4% raunávöxtun eigna sinna til þess að geta staðið undir þeim skuldbindingum sem þeir hafa tekið á sig.
Eins og ég gat um áður hefur tvisvar verið tekið til við að skerða réttindi í Lífeyrissjóði sjómanna og síðast var m.a. hin svokallaða 60 ára regla gerð hlutlaus með því að menn gátu tekið áfram lífeyri sextugir en tóku hann þá skertan að mig minnir upp á 24%, eru komnir á slétta stöðu 65 ára en fara síðan að vinna sér inn ávinning frá 65 ára og upp í sjötugt með því að fresta töku lífeyris og eiga ef þeir taka hann sjötugir að vera komnir með 24% ávinning umfram 65 ára aldursmörkin.
Það er rétt hjá hv. þingmanni að margir sjómenn eru ekki til starfanna á sjó eftir sextugt, þótt blessunarlega séu til dæmi um að sjómenn haldi góðri heilsu. Það er m.a. einn þátturinn sem skoða þarf við þessar lagabreytingar, þ.e. aldurssamsetningin í Lífeyrissjóði sjómanna og í öðrum lífeyrissjóðum sem hafa sjómenn innan sinna vébanda. Ég er ekki viss um að hún sé eins og í almennu lífeyrissjóðunum.