Lífeyrissjóður sjómanna.
Guðmundur Hallvarðsson (S):
Virðulegi forseti. Það er vissulega af mörgu að taka í þessu mikla máli sem oft hefur verið rætt um í sölum Alþingis.
Lög um Lífeyrissjóð sjómanna urðu til árið 1957. Þá hétu þau lög um Lífeyrissjóð togarasjómanna. Árið 1960 komu síðan farmenn inn í sjóðinn, sem upp úr því fékk nafnið Lífeyrissjóður togarasjómanna og undirmanna á kaupskipum. Síðan var gerður samningur árið 1970 um að fiskimenn kæmu inn í þennan sjóð og greiddu þeir aðeins af 25% kauptryggingu á meðan aðrir sem voru fyrir í sjóðnum greiddu af heildarlaunum sínum.
Það var nokkur aðdragandi að því að sjómenn kæmu inn í lífeyrissjóðinn en þess ber að gæta að margir sjómenn voru mjög andsnúnir því að fara í lífeyrissjóðinn. Þar má t.d. nefna fiskimenn á smærri bátum. Togarasjómenn töldust þeir sem voru á togurum yfir 400 tonnum og stærri en bátasjómenn, á skipum undir þeirri stærð, komu ekki inn í þennan sjóð fyrr en árið 1970 og greiddu þá, eins og ég sagði áðan, óverulegan hlut í lífeyrissjóðinn, því miður aðeins af kauptryggingu sinni eins og ég gat um áðan. Það hefur valdið leiðindum og deilum í umræðum sjóðfélaga á milli. Þegar komið hefur að greiðslu lífeyris þá hefur hann verið jafnmisjafn og aðkoma sjómanna að lífeyrissjóðnum.
Bæði voru bátasjómenn andsnúnir því að fara inn í lífeyrissjóðinn og svo, eins og ég gat um áðan, vildu sjómenn úti á landi ekki ganga í Lífeyrissjóð sjómanna. Þess vegna er um marga lífeyrissjóði að ræða sem sjómenn greiða til iðgjöld sín enn í dag og þess vegna, eins og hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson og Jón Bjarnason komu inn á, erum við ekki að fjalla um alla sjómenn þegar við tölum um Lífeyrissjóð sjómanna.
Þegar litið er á lög um Lífeyrissjóð sjómanna þá eru þar aðeins sex greinar um lög um Lífeyrissjóð sjómanna en um 20 reglugerðargreinar fjalla um lífeyrissjóðinn. Það er kannski til marks um hvernig stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna hefur þurft að leita víða fanga og taka mið af reglugerðum annarra lífeyrissjóða við að útbúa ramma utan um starfsemi sína.
Hér var komið inn á örorku sjómanna og þau vandamál sem við hafa blasað varðandi stöðu sjóða með sjómenn innan sinna vébanda. Hvað áhrærir Lífeyrissjóð sjómanna þá er það rétt, eins og hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson kom inn á, að 43% þeirra upphæða sem greiddar eru úr Lífeyrissjóði sjómanna eru vegna örorku, 42% vegna lífeyris og 15% eru ekkna- og barnabætur.
Sé það skoðað að enn skuli slysatíðni á sjó vera með þeim hætti sem hún er núna, að á fimmta hundrað sjómanna, af rúmlega þremur þúsundum í starfi, skuli slasast árlega þá sjá menn náttúrlega að eitthvað er að. Ég er sannfærður um að þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir þá reiknuðu menn ekki með því að svo mundi fara að örorkuþáttur lífeyrissjóðanna yrði slíkur. Menn stofnuðu lífeyrissjóði til að búa öldruðum gott ævikvöld en reyndin er sú að örorkan hefur orðið öllum lífeyrissjóðum í landinu íþyngjandi og einkum sjóðum sjómanna og fiskverkunarfólks.
Umhverfið hefur breyst. Með lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrisjóða, tel ég að nokkuð hafi verið komið til móts við að tryggja starfsemi lífeyrissjóðanna og rétt þeirra til innheimtu ef atvinnurekendur greiddu ekki í sjóðina af launum eins og til er ætlast.
Þegar talað er um hvort rétt sé að flýta þessum lögum eða að menn vilji hafa varann á sér þá er það í sjálfu sér ekki óeðlilegt. En hinu er þó ekki að leyna að það eru ekki mörg ár síðan fjölgað var í stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna þannig að nú sitja þar níu fulltrúar, allra stéttarfélaga eða samtaka sjómanna og útgerðarmanna. Þau senda nú bréf og óska eftir því að lög um Lífeyrissjóð sjómanna verði nánast afnumin og sjóðurinn starfi á sama grunni og með sama hætti og aðrir lífeyrissjóðir í landinu.
Ég minnist þess að það eru ekki mörg ár síðan tekið var fram í lögum um Lífeyrissjóð sjómanna hvert væri heimili hans og varnarþing. Heimili Lífeyrissjóðs sjómanna skyldi þá vera innan Tryggingastofnunar ríkisins. Það þótti mönnum miður þegar á leið og var því lögum um Lífeyrissjóð sjómanna breytt þannig að heimili og varnarþing væru í Reykjavík. Hins vegar var ekki tíundað frekar hvert heimilisfangið væri, sem var náttúrlega mjög óeðlilegt að í lögunum skyldi standa þannig.
Hér var komið nokkuð inn á 60 ára regluna. Það er náttúrlega kapítuli út af fyrir sig í sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar vegna þess að algengt var á þeim sama tíma að allir þeir sem gerðu kjarasamninga í kringum árin 1975–1977, að fólk fengi lægri launahækkanir en vísitala sagði til um og fengu í staðinn hækkun á greiðslum í sjúkrasjóði sína og orlofssjóði. Jafnvel voru til stéttarfélög sem fengu hækkanir vegna svokallaðs félagsheimilagjalds. Á þeim tíma voru sjómenn í kjarasamningum og þá var rætt um hvort og með hvaða hætti sjómenn gætu komið að slíkum félagsmálapökkum með sama hætti. Einnig var nokkuð rætt um vinnutímaákvæði og fleira sem illmögulegt þótti að koma inn í kjarasamninga sjómanna.
Úr varð að gengið var til samninga með loforð þáverandi stjórnvalda um að ef ekki yrði hækkun á kauptryggingu fiskimanna eða hækkun á fiskverði, sem þá var ákveðið af svokallaðri sex manna nefnd, þá mundu sjómenn fá félagsmálapakka, eins og ég gat um áðan, þ.e. möguleika á að hætta sjómennsku eftir 25 ára starf við 60 ára aldur. Hins vegar var aldrei formlega gengið frá því við stjórnvöld hver skyldi borga þann reikning og þær háu upphæðir sem mundu renna úr Lífeyrissjóði sjómanna. Því var lofað en orð voru ekki látin standa.
Farið var í mál við ríkisvaldið og eins og fram hefur komið felldi Hæstiréttur þá kröfu. Hún var ekki talin eiga sér neina stoð.
Ég hef ekki áttað mig á því, virðulegi forseti, sem fram kom í máli Guðjóns Arnars Kristjánssonar, að þau ákvæði sem hér er um að ræða, þær lagabreytingar, geti haft áhrif á atkvæðagreiðslu sjómanna sem nú stendur yfir vegna nýgerðs kjarasamnings. Ef svo er þá er eðlilegt að þetta mál fái að anda. Hins vegar er það rétt, eins og hæstv. fjármálaráðherra kom inn á, að það er ekki ástæða til að draga málið frekar en þörf er á, með tilliti til óska fulltrúa útgerðar og sjómanna sem biðja um að þessi lög verði afnumin og þeim sköpuð sömu starfsskilyrði og umhverfi og aðrir lífeyrissjóðir starfa eftir, lífeyrissjóðir sem sjómenn eru innan víða um land eins og fram kom áðan, í Vestmannaeyjum, á Austurlandi, Vestfjörðum og fyrir norðan líka.
Ég tek undir, virðulegi forseti, þær óskir sem hér hafa verið lagðar fram af hálfu stjórnar Lífeyrissjóðs sjómanna, með tilliti til þess hóps sem þar situr við stjórnarborðið. Ég tel rétt að unnið verði hratt og vel í þessu máli.