131. löggjafarþing — 43. fundur,  29. nóv. 2004.

Gjald af áfengi og tóbaki.

389. mál
[20:59]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Elmar Hallgrímsson og Sigrúnu Ólafsdóttur frá fjármálaráðuneyti, Hallgrím Snorrason frá Hagstofu Íslands, Ernu Hauksdóttur frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Höskuld Jónsson frá ÁTVR.

Í frumvarpinu er lagt til að gjald á sterkt áfengi og tóbaksgjald hækki um 7%. Þessi gjöld hafa ekki hækkað frá nóvember 2002 og er hækkunin í takt við hækkun verðlags á þessum tíma. Með hækkuninni halda gjöld þessi raungildi sínu.

Gjald á létt vín og bjór hækkar hins vegar ekki og er það í samræmi við þá stefnu að færa neyslu frá sterku áfengi yfir í létt vín og bjór. Sú stefna hefur náð marki sínu eins og kemur skýrt fram í sölutölum ÁTVR fyrir síðustu ár. Gjald á létt vín og bjór hefur ekki hækkað í krónutölu frá 1998 og hefur því lækkað að raungildi um nálægt 22%.

Þær breytingar sem lagðar eru til eru í samræmi við forsendur í tekjuáætlun fjárlagafrumvarps fyrir árið 2005 og meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt. Undir nefndarálitið skrifa auk mín hv. þm. Dagný Jónsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Siv Friðleifsdóttir, Gunnar Birgisson og Álfheiður Ingadóttir.

Ég vil bæta því við vegna umræðunnar áðan að þau ykkar sem komin voru til vits og ára fyrir áratug, orðin fertug eða meira, munið eftir því þegar hér í landinu geisaði verðbólga. Það var áður en þessi góða ríkisstjórn kom til valda. Þá rýrnuðu krónur mjög hratt. Ef einhver upphæð var óverðtryggð og hækkaði ekki þá lækkaði hún að raungildi. Þetta vissu allir Íslendingar á þeim tíma, allir þeir sem voru komnir til vits og ára og líka hinir sem eru svo ungir að þeir muna ekki eftir þessum tímum. (Gripið fram í: Ég man þetta víst.) Sú umræða sem áðan átti sér stað, um að hér væri um skattahækkun að ræða, er náttúrlega alveg út í hött. Krónutalan hækkar þannig að fjárhæðin haldi í við verðbólguna, það er allt og sumt. Hún er látin halda verðgildi sínu miðað við verðlag. Það er ekki skattahækkun í mínum huga.

Gjöld sem eru hins vegar látin haldast óbreytt ár eftir ár eru skattalækkun. Ef mönnum finnst þetta gjald hátt — sem ég reyndar tel og ég er ekkert sáttur við þetta gjald — og vilja lækka það, eiga þeir að gera það meðvitað en ekki láta verðbólguna gera það að þeim meðvitundarlausum. Menn eiga að lækka skatta og hækka meðvitað. Verðbólguáhrif eiga ekki að hafa áhrif á það hvort skattar hækka eða lækka.

Varðandi það sem kom fram áðan um að skuldir heimilanna hækkuðu um 0,08% þá er það gömul tugga. Ég minni t.d. hv. þingmenn á að verðbólga síðustu tíu ára hefur að mestu leyti stafað af hækkun íbúðarhúsnæðis sem aftur veldur aukinni verðbólgu. Ef húsnæðisverð hækkar um ákveðna prósentu hækkar vísitalan að sjálfsögðu miklu minna af þeim ástæðum og skuldirnar hækka því miklu minna hlutfallslega. Mismunur á eignum og skuldum íbúðaeigenda hefur því aukist óðfluga síðustu árin. Þróunin sem verið hefur undanfarið er ekki til skaða fyrir íbúðareigendur, alls ekki.