Fjáraukalög 2004.
Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Jón Bjarnason) (Vg) (andsvar):
Herra forseti. Fyrst varðandi atriði sem ég átti ósvarað frá fyrra andsvari hv. þingmanns, um fjárlagavinnuna. Þá var ég að tala um fjárlagavinnuna og fjárlagagerðina, ekki endilega stöðu fjárlaganefndar eða ítreka hversu veik hún væri orðin. (DrH: talaðir um óvönduð vinnubrögð.) Já, ég talaði um óvönduð vinnubrögð við fjárlagagerðina. Fjárlaganefndarmenn, sérstaklega meiri hlutinn, geta þá tekið það til sín eftir því sem við á en það er alveg ótækt að verið sé að kreista út úr fjármálaráðuneytinu á síðustu mínútunum áður en farið er í umræðuna um fjáraukalög grunntölur sem eru nauðsynlegar til að vinna með í fjárlagagerðinni, grunntölur sem ættu að liggja fyrir strax á hausti. Því miður verður hv. þm. að sætta sig við að þarna eru verulegar brotalamir á.
Varðandi síðan þetta með sveltistefnu ríkisins gagnvart sveitarfélögunum. Þau voru virkilega pínd til að selja Orkubú Vestfjarða á sínum tíma. Þeim var stillt upp við vegg. Eftirlitsnefnd sveitarfélaga er víðar að stilla sveitarfélögunum upp við vegg. Hvernig er í Vestmannaeyjum? Þar eru menn að reyna að selja skólann sinn og taka hann svo aftur á leigu til þess að bjarga lausafjárstöðunni. Þetta eru alveg óverjandi aðgerðir, sú erfiða staða sem mörg sveitarfélög eru sett í, ríkið situr hjá, hlær og lækkar skatta, segir að við höfum það svo gott en sveitarfélögin sem sitja uppi með verkefnin vantar tekjustofna og eru pínd til þess að selja frá sér þjónustustofnanir og skera niður þjónustu. Svona vinnur maður ekki ef það á að vera með ábyrgum hætti. Þarna er ríkið að svíkjast undan þeim ábyrgðum sem það ber.