Fjáraukalög 2004.
Össur Skarphéðinsson (Sf):
Frú forseti. Það er e.t.v. litlu við að bæta eftir þessa yfirgripsmiklu ræðu hv. þm. Jóns Gunnarssonar sem speglaði djúpa þekkingu á þessum málaflokki. Við erum hér að ræða fjáraukalög og hv. þm., félagar mínir úr Samfylkingunni, Jón Gunnarsson og Einar Már Sigurðarson, hafa farið ákaflega ítarlega yfir það frumvarp sem hér er til 3. umr.
Ég vil segja það í byrjun að þegar fjáraukalögin voru lögð fram í haust spunnust hér töluvert harðar umræður um það með hvaða hætti væri hægt að bera saman þau áform sem ríkisstjórn birtir annars vegar í fjárlagafrumvörpum og hins vegar í niðurstöðu fyrir sérhvert ár eins og hún kemur fram í ríkisreikningi. Það er rétt að rifja upp að á síðasta áratug voru samþykkt sérstök lög um fjárreiður ríkisins þar sem reynt var að búa svo um hnúta að þessir hlutir væru sambærilegir. Það væri þess vegna hægt að sjá hvernig ríkinu tækist varðandi framkvæmd fjárlaga. Þetta skiptir máli við umræðuna.
Hví segi ég það, frú forseti? Vegna þess að við höfum sagt það, eins og hv. þm. Jón Gunnarsson lauk sinni prýðilegu ræðu á hér áðan, að áætlanirnar sem hæstv. fjármálaráðherra hefur lagt hér fram í fjárlagafrumvörpum eru ekki pappírsins virði. Þetta eru glansmyndir sem hæstv. ráðherra hefur notað til að slá sér upp á. Hann heldur blaðamannafundi á hverju einasta hausti og heldur fram ákveðnum blekkingum gagnvart fjölmiðlum og þjóðinni og segir: Svona gerum við, svona ætlum við að ná miklum árangri. Svona er ég góður fjármálaráðherra og svona er þetta góð ríkisstjórn.
Það hefur aldrei brugðist á seinni árum að þessi glansmynd hefur ekki reynst pappírsins virði. Áætlanir hæstv. fjármálaráðherra hafa þegar upp er staðið allar fokið út í veður og vind. Þegar ríkisreikningur er skoðaður kemur í ljós að niðurstaðan er alltaf allt öðruvísi en átti að vera. Hvergi er þetta jafnátakanlegt og þegar hæstv. fjármálaráðherra ber sér á brjóst yfir þeim afgangi sem ríkisstjórnin ætlar að skila á fjárlögum.
Á bilinu 2000–2003 ætlaði hæstv. fjármálaráðherra að skila afgangi sem samtals næmi 75 milljörðum. Þegar upp er staðið sat hæstv. fjármálaráðherra eftir með í fanginu halla á ríkissjóði upp á 10 milljarða. Sama birtist þegar skoðuð eru áform hæstv. fjármálaráðherra um útgjaldaþróun ríkisins. Þar stendur ekki steinn yfir steini. Á þessum árum, frá árinu 2000 til 2003, fór hæstv. fjármálaráðherra 114 milljarða fram úr hvað varðar útgjöld ríkisins. Hæstv. ráðherra hélt enga blaðamannafundi þegar þessi skelfilegu glöp komu fram. Þá var ekki boðað til blaðamannafunda í Þjóðmenningarhúsinu til að segja frá því að honum hefði mistekist í lykilatriði, þ.e. þensluþróun ríkisútgjalda. Það verður að segja það alveg eins og er að hæstv. fjármálaráðherra hefur reynst einhver versti spámaður um það hvernig ríkisútgjöld munu þróast hér á landi.
Hæstv. ráðherra hefur ítrekað lagt fram áform og áætlanir í fjárlagafrumvörpum og ekkert gengur eftir. Það er alveg sama í hvaða kristalskúlu hann og völvur hans í ráðuneytinu reyna að skoða til að spá fyrir um framtíðina, það gengur ekkert eftir. Það er alveg sama hvort við erum hér að tala um afgang á ríkissjóði, þróun ríkisútgjalda, verðbólgu, viðskiptahalla, atvinnuleysi — um engar þessara lykilstærða hefur hæstv. fjármálaráðherra haft rétt fyrir sér. Þetta eru ákaflega sorglegar lyktir og maður hálfvegis vorkennir hæstv. ráðherra. Mest vorkenni ég þó hæstv. ráðherra, frú forseti, vegna þess að hann hefur ítrekað komið hingað og efnt til mikilla burtreiða við hv. þingmenn Samfylkingarinnar og sagt að þessi samanburður sem ég er hér að rekja standist ekki. Hæstv. fjármálaráðherra hefur sagt það ítrekað að ekki sé hægt að bera saman þær áætlanir sem koma fram í frumvörpum til fjárlaga og síðan ríkisreikning fyrir sama ár. Breytingin sem gerð var á fjárreiðulögunum um miðjan síðasta áratug var einmitt þess eðlis að það á að vera hægt að gera það. Sá ágæti þingmaður stjórnarliðsins, þáverandi formaður fjárlaganefndar, sem mælti fyrir því frumvarpi sagði einmitt að með þeirri breytingu væri hægt að bera saman niðurstöður í ríkisreikningi við þau áform sem kæmu fram í fjárlagafrumvarpi. Hæstv. fjármálaráðherra hefur samt sem áður mótmælt þessu harkalega. Hann hefur hjólað hér í einstaka þingmenn Samfylkingarinnar sem hafa haldið öðru fram, og hver veit nema hæstv. ráðherra birtist í gættinni á eftir og finni líka að þessum málflutningi mínum?
Ég vil þess vegna rifja það skýrt upp að í nýlegri skýrslu sem Ríkisendurskoðun gaf út um endurskoðun ríkisreiknings árið 2003 er sérstakur kafli sem er helgaður hæstv. fjármálaráðherra. Hann er um reikningsskilaaðferðir og þar segir, með leyfi forseta:
„Tekið skal fram að gert er ráð fyrir að ríkisreikningur verði færður með sama hætti og því verði áætlanir fjárlaga og niðurstöður ríkisreiknings að fullu samanburðarhæf.“
Nú langar mig að beina þeirri fyrirspurn til hv. formanns fjárlaganefndar, Magnúsar Stefánssonar, hvort hann sé sammála eða ósammála þessari niðurstöðu Ríkisendurskoðunar. Telur hv. þm. að það sé rangt sem Ríkisendurskoðun segir hér á bls. 18 í þessari skýrslu, að áætlanir fjárlaga og niðurstöður ríkisreiknings séu að fullu samanburðarhæfar? Það verður fróðlegt að heyra svar hv. þingmanns. Ef hann er ósammála Ríkisendurskoðun hlýtur hann sem formaður nefndarinnar að skýra hvers vegna. Ég tel að það væri þarfast að hann gerði það með einhverjum hætti á prenti þannig að menn gætu farið yfir þær röksemdir alveg eins og aðstoðarmaður fjármálaráðherra fyrir hans hönd skýrði sína afstöðu í blaðagrein. Ég tel að þetta sé ákaflega mikilvægt og óska eftir því að hv. þm. Magnús Stefánsson skýri afstöðu sína til þessa.
Einmitt þessi niðurstaða Ríkisendurskoðunar gerir það að verkum að við í Samfylkingunni teljum að við höfum alveg örugglega haft rétt fyrir okkur þegar við segjum að það er hægt að meta frammistöðu fjármálaráðherra og ríkisstjórnar hverju sinni með því að bera saman þau áform sem ríkisstjórnin birtir í fjárlagafrumvarpi og síðan þá niðurstöðu sem birtist í ríkisreikningi.
Hæstv. fjármálaráðherra hefur t.d. sagt að á því ári sem nú er að líða verði afgangur á ríkissjóði upp á 6,7 milljarða. Nú er auðvelt að færa rök að því að það er harla lítill afgangur í árferði eins og núna þegar sjaldan hefur ríkt meiri velsæld og góðæri. Það mætti ætla að í svona árferði skilaði ríkissjóður miklu meiru en 6,7 milljörðum. En látum gott heita, við skulum vona að það vísi til betri framtíðar. Það versta er þó að miðað við reynsluna af frammistöðu hæstv. fjármálaráðherra eru engar líkur á því að þessi tala gangi eftir. Þegar ég tala um reynsluna af verkum hæstv. fjármálaráðherra horfi ég auðvitað til þess að síðustu ár bera vitni um allt annað en að hæstv. ráðherra geti nokkurn tíma staðið við áætlanir sínar.
Má ég rifja það upp, frú forseti, að árið 2000 lagði hæstv. ráðherra fram frumvarp sem gerði ráð fyrir tekjuafgangi af ríkissjóði upp á 15 milljarða. Ríkisreikningur fyrir árið 2000 sýndi halla upp á 4,3 milljarða. Árið 2001 lagði hæstv. ráðherra til og sýndi áætlanir um það að afgangur af ríkissjóði yrði 30 milljarðar. Það varð afgangur það ár, eina árið af síðustu fjórum árum, en hann varð ekki 30 milljarðar heldur 8,6 milljarðar. Árinu síðar, 2002, lagði hæstv. ráðherra fram í fjárlagafrumvarpi áætlun sem gerði ráð fyrir því að afgangurinn yrði 18,6 milljarðar. Niðurstaðan varð halli upp á 8,1 milljarð. Hið sama varð árið 2003. Þá átti að vera afgangur upp á 10,7 en niðurstaðan varð halli uppi á 6,7 milljarða.
Svona hefur þetta verið.
Svo kemur hæstv. ráðherra og heldur því fram að hér sé ekki um að ræða samanburðarhæfar tölur vegna óreglulegra liða eins og lífeyrissjóðaskuldbindinga, sölu ríkiseigna o.s.frv. Það blasir hins vegar við að í úttekt Ríkisendurskoðunar kemur fram að þetta eru að fullu samanburðarhæfar áætlanir, þ.e. fjárlög annars vegar og loks sú endanlega niðurstaða sem birtist í ríkisreikningi. Sú er niðurstaða Ríkisendurskoðunar og hæstv. fjármálaráðherra verður að koma með betri rök máli sínu til stuðnings en einhverjar geðvonskulegar ræður hér í þingsölum og upphlaup gagnvart einstökum þingmönnum. Þá er ég að vísa til þess þegar hæstv. fjármálaráðherra hjólaði hér harkalega í hv. þm. Ágúst Ólaf Ágústsson út af einmitt þessu, út af hlutum sem hann hafði sagt. Hv. þm. var að vísu ekki viðstaddur þá og gat ekki svarað.
Hér tel ég að ég hafi skýrt mjög rækilega viðhorf Samfylkingarinnar til þessa. Hæstv. fjármálaráðherra hefur líka skýrt viðhorf sín en ég vil gjarnan heyra hvað hv. þingmanni, formanni fjárlaganefndar, finnst um þetta.
Við búum við sérstakar aðstæður í efnahagslífinu núna. Margt hefur breyst frá kosningum og við sem töldum þá, bæði hæstv. fjármálaráðherra og ýmsir aðrir, að við værum að horfa fram á tiltölulega stöðugt efnahagsástand sjáum hins vegar ýmis teikn á lofti sem benda til annars. Við sjáum t.d. að viðskiptahalli er hér orðinn gríðarlegur og þó að það megi með vissum hætti fallast á það að a.m.k. hluti af þessum viðskiptahalla sé það sem menn hafa skilgreint sem góðkynja viðskiptahalla er það einfaldlega þannig að stærsti hlutinn af honum stafar af öðru en fjárfestingum við stóriðju austur á landi. Það hlýtur að skipta ákaflega miklu máli.
Viðskiptahallinn í dag er nærri 70 milljarðar, hann er 7–8% af landsframleiðslu og því er spáð að hann fari ört vaxandi á næstu árum þannig að árið 2006 verði hann kominn í 13–14% af landsframleiðslu. Ég man aldrei eftir því að hafa séð slíkar tölur hér, a.m.k. ekki frá því að ég fór að fylgjast með stjórnmálum, en hæstv. fjármálaráðherra leiðréttir mig þá ef svo er. Það er náttúrlega alveg hrikalegt þegar viðskiptahallinn er kominn í 140 milljarða.
Ég veit vel að því er spáð að á árunum þar á eftir lækki hann töluvert mikið, og lækkar vonandi hratt. Ég óttast hins vegar að þessi staða sem er allt önnur en menn áttu von á geti leitt til þess að allrækilega verði grafið undan genginu og það hafi áhrif á allt efnahagsástandið. Ég ætla ekki að fara að spá neinu illu, frú forseti, en það er alveg ljóst hvað varðar þessa stöðu að hún er öll önnur og miklu verri en áður.
Hæstv. fjármálaráðherra og ríkisstjórnin hafa gumað af því að þau standi nú fyrir mestu skattabyltingu sem nokkru sinni hefur sést í þingsölum og á Íslandi. Að vísu hefur hæstv. fjármálaráðherra vælt undan því í fjölmiðlum að landslýður skilji ekki þessa skattabyltingu. Ástæðan er auðvitað séu að menn eru fullir varúðar gagnvart ríkisstjórninni þegar verið er að tala um skattalækkanir. Staðreyndin er nefnilega sú, frú forseti, að ef við skoðum þær skattalækkanir sem ríkisstjórnin hefur samþykkt fyrir þetta ár og næsta og reiknum dæmið til hlítar blasir eftirfarandi við:
Ríkisstjórnin er búin að hala inn fyrir kostnaðinum við þær skattalækkanir sem verða í ár og á næsta ári. Það hefur hún gert með því að hækka ýmsa aðra skatta. Í gær vorum við hér með þrjú frumvörp í gangi. Fyrr um daginn voru á dagskrá frumvörp um aukatekjur ríkissjóðs og bifreiðagjöld sem samanlagt gera ráð fyrir því að skattheimta ríkisins aukist um 320 millj. kr. Í gærkvöldi samþykktum við hér líka hækkun á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi sem fól í sér aðra skattheimtu upp á 320 millj. kr. Þetta leiddi líka til hækkunar á neysluvísitölu. Bara í gær samþykkti ríkisstjórnin auknar álögur á landsmenn sem hægt er að segja að nemi samtals 640 millj. kr. og á sama degi leiddi þetta líka til hækkunar á neysluvísitölu þannig að færa má sterk rök að því að skuldaklyfjar landsmanna hafi í gær hækkað um a.m.k. einn milljarð kr.
Þessar hækkanir koma í kjölfar annarra hækkana sem ríkisstjórnin beitti sér fyrir á síðasta ári. Þar má nefna hækkun á þungaskatti, hækkun á sérstöku bensíngjaldi, lækkun vaxtabóta, afnám sérstakrar ívilnunar vegna séreignarlífeyrissparnaðar, hækkun komugjalda á heilsugæslu auk margra annarra smærri gjalda sem voru lögfest í fyrra. Þá eru ótaldar ýmsar hækkanir sem hafa komið fram á yfirstandandi vetri, eins og hækkun á skólagjöldum og enn frekari hækkanir á komugjöldum.
Samtals er hægt að meta þær hækkanir sem ríkisstjórnin beitti sér fyrir á síðasta ári og þessu ári til a.m.k. 5 milljarða kr. Það er hærri tala en kostnaðurinn sem ríkissjóður hefur af því að lækka skatta samkvæmt áætlun fyrir næsta ár, þ.e. 2% lækkun á hátekjuskatti og 1% flata lækkun á tekjuskattshlutfalli. Ríkisstjórnin er þess vegna þegar búin að fjármagna skattalækkanir þessa og næsta árs með hækkunum á gjöldum og sköttum sem hún er búin að samþykkja. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem berja sér á brjóst og tala um skattbyltingar ættu að skoða þetta. Staðreyndin er sú að frá því að þetta kjörtímabil hófst hafa þeir hækkað ýmiss konar skatta, ýmiss konar álögur, ýmiss konar gjöld í þeim mæli að þeir hafa fengið inn auknar tekjur í ríkissjóð sem eru hærri en kostnaðurinn við skattalækkanir. Hverjir borga þá fyrir skattalækkanir ríkisstjórnarinnar? Það eru landsmenn sjálfir sem gera það.
Ef við skoðum hvernig þessi gjöld, t.d. þungaskattur, sérstakt bensíngjald, vaxtabætur, komugjöld á heilsugæslustöðvar, áfengisgjaldið, bifreiðagjaldið dreifast á fólk þá sjáum við það auðvitað að millitekjufólkið og lágtekjufólkið greiðir í reynd að hluta til fyrir skattalækkanir hátekjumanna á næsta ári. Það er ekki réttlæti og það er ekki það sem við lögðum upp með í þessari umræðu um skattalækkanir. Það er með öðrum orðum hægt að sýna fram á að ríkisstjórnin sé að hækka skatta á fyrstu tveimur árum kjörtímabilsins en ekki að lækka þá. En hún er líka að breyta innri dreifingu skattbyrðarinnar þannig að lágtekjufólk og millitekjufólk núna á fyrstu 24 mánuðum kjörtímabilsins er að öllum líkindum að greiða meira frá sér en það er að fá til sín. Hverjir njóta þessa? Það eru hátekjumennirnir sem njóta þess mest. Þetta finnst mér algjörlega nauðsynlegt að komi fram, frú forseti, í þessari umræðu.
Það er líka athyglisvert þegar við erum hér að ræða fjáraukalög að skoða að ekki er mikið tillit tekið til stöðu sveitarfélaganna um þessar mundir. Við höfum á þessum vetri þremur eða fjórum sinnum rætt stöðu sveitarfélaganna og hversu erfið hún er. Það hefur komið fram m.a. hjá talsmönnum og þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að ýmis sveitarfélög séu að hækka gjöld og útsvar og það er rétt. En hvernig stendur á því að ýmis sveitarfélög eru að hækka gjöld og hækka útsvar eins og þau geta? Ástæðan er einföld. Þau eru fjársvelt af ríkinu.
Á síðustu árum hefur ýmsum verkefnum verið ekið yfir á sveitarfélögin og ýmsar breytingar hafa verið gerðar sem hafa dregið úr tekjum þeirra. En ríkisstjórnin hefur ekki komið til móts við sveitarfélögin til þess að mæta kostnaðinum af auknum verkefnum og til þess að mæta áföllum, því að það er hægt að kalla það áfall þegar sveitarfélögin í landinu samtals tapa 1,2–1,4 milljörðum vegna skattkerfisbreytinga ríkisins. Við sjáum það ekki í þessum fjáraukalögum að hæstv. ríkisstjórn sé með einhverjum hætti að reyna að bæta stöðu þeirra, síður en svo. Þess vegna segi ég: Ég lýsi allri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni þegar kemur að útsvarshækkunum og gjaldahækkunum sveitarfélaga. Ég held því fram að ríkisstjórnin sé með því að fjársvelta sveitarfélögin að knýja þau til þess að nota þau meðöl sem þau geta til þess að auka tekjur með útsvarshækkunum og gjaldahækkunum. Þar er ríkisstjórnin því í reynd að velta skattbyrði yfir á íbúana og svo kemur hún hingað og talar um að hún sé að lækka skatta. Þetta verða menn líka að skoða þegar þeir gera upp debet og kredit varðandi skattstefnu ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Ég hef töluverðar áhyggjur af því hvernig sveitarfélögunum mun vinda fram. Við sjáum að í mörgum sveitarfélögum er þjónustan að batna. Við sem erum foreldrar skólabarna getum borið vitni um það að grunnskólinn hefur tekið stakkaskiptum frá því að hann fluttist yfir til sveitarfélaganna í ágúst 1996. Þjónustan er miklu meiri en áður og hún er sérstaklega góð við þau börn sem með einhverjum hætti þurfa sérstaka umönnun. Ýmiss konar nýbreytni sem fylgir nútímanum hefur verið tekin upp í skólakerfinu, t.d. það sem menn hafa kallað skóla án aðgreiningar. Það er í sjálfu sér alveg dásamlegt að skynja það viðhorf sem þar liggur að baki. Það er viljinn til þess að taka sérstaklega á þeim börnum sem með einhverjum hætti eru á eftir og við hér áður fyrr greindum frá öðrum börnum með því að setja í sérstakar deildir og sérstaka skóla. Þarna er verið að sjá til þess að öll börn geti verið saman í sínum árgangi. Þetta er bæði fallegt og þetta er þroskavænlegt. En þetta kostar peninga og þetta er ástæðan fyrir því að starfsígildum hefur fjölgað innan grunnskólanna. Það er vegna þess að verið er að taka á vandamálum og bæta þjónustuna.
Ég tel að í þessu felist mikill samfélagslegur ávinningur. En ég geri mér líka grein fyrir því að af því hlýst töluverður kostnaður. En ég segi: Sá kostnaður er samfélagslegur. Þess vegna er ég þeirrar skoðunar að fyllilega komi til álita að ríkisvaldið taki á sig hluta af þessum samfélagslega kostnaði. Kröfur fólksins í landinu breytast og því er svarað með aukinni þjónustu af hálfu sveitarfélaganna og sú þjónusta kostar meira en þegar skólinn var fluttur.
Nú vil ég taka það alveg skýrt fram að ég er ekki með þessu að segja að rangt hafi verið gefið þegar skólinn var fluttur yfir. Ég veit að ýmsir þingmenn halda því fram. En hv. þm. Einar Már Sigurðarson hefur t.d. rökstutt það viðhorf sitt að svo hafi ekki verið. Ég hef ekki skoðað það til hlítar og ég er ekki að halda því fram að það hafi verið vitlaust gefið. Ég er hins vegar að rökstyðja hér að þjónusta skólanna er miklu betri og það er meira af hamingjusömum börnum í landinu út af þessu. Er það ekki nokkurs virði? Að sjálfsögðu skiptir það ákaflega miklu máli.
Frú forseti. Þegar kjarasamningar voru gerðir síðast var gert ráð fyrir því að verðbólgumarkmiði Seðlabankans yrði náð. Það var gert ráð fyrir því við forsendur kjarasamninga að verðbólgan færi ekki fram úr 2,5%. Nú blasir við að það verður ákaflega erfitt að ná því marki. Verðbólgan er núna þegar komin yfir 3%. Greiningardeildir bankanna spá því að hún muni halda áfram að aukast. Greiningardeild Landsbankans hefur gefið frá sér álit sem bendir til þess að hún muni jafnvel fara meira en tvöfalt yfir þolmörk Seðlabankans. Hagdeild ASÍ hefur spáð því að ef verðbólguþróunin heldur áfram eins og hún hefur verið hingað til þá muni verkalýðshreyfingin neyðast til þess að segja upp kjarasamningum. Maður hlýtur auðvitað að spyrja: Er þetta stöðugleikinn sem hæstv. fjármálaráðherra hefur verið að berja sér á brjóst yfir? Er þetta stöðugleikinn sem ríkisstjórnin hefur verið að guma af?
Það er óhjákvæmilegt þegar menn ræða efnahagsmál og hagstjórn ríkisins að hæstv. fjármálaráðherra sé inntur eftir því með hvernig hann ætli að beita þeim tækjum sem hann hefur yfir að ráða til þess að draga úr verðbólgunni. Eða ætlar hann bara að sitja aðgerðalaus hjá?
Hér fyrir nokkrum árum, í desember 2002, blasti líka við sú framtíðarsýn að samfélagið mundi sigla yfir rauðu strikin sem voru forsenda þeirra kjarasamninga sem þá giltu. Þá var gripið til samræmdra aðgerða af hálfu verkalýðshreyfingarinnar, ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar. Við í stjórnarandstöðunni héldum hér ræður daginn út og daginn inn til þess að benda á hvernig ýmsar hækkanir ríkisstjórnarinnar leiddu til þess að verðbólgan væri að fara úr böndunum. Sem betur fer hlíttu menn þeim aðvörunarorðum sem komu mjög víða að úr samfélaginu og það leiddi til þess að ríkisstjórnin greip að lokum til þess að lækka ýmis gjöld hins opinbera til þess að stuðla að því að ekki væri brotist í gegnum múr hinna rauðu strika. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera núna? Ætlar hún bara að fljóta sofandi að feigðarósi?
Þessu til viðbótar hafa margir sérfræðingar, sem út af fyrir sig hafa ekki tekið illa í eðli þeirra skattbreytinga sem ríkisstjórnin hefur verið að leggja fram, eigi að síður mælt ákveðin varnaðarorð. Þeir hafa bent á að miðað við þá þensluþróun sem er í samfélaginu sé óhjákvæmilegt af ríkisins hálfu að taka úr umferð sama eða svipað magn af peningum og sem nemur skattalækkununum. Frá hagfræðilegu sjónarmiði hljómar þetta heldur vitlega. En þá verður maður að spyrja: Hvernig á ríkisstjórnin að gera það? Til hvaða ráða getur hún gripið? Hún getur þá væntanlega ekki gripið til annars en að skera niður í útgjöldum ríkisins. Þá hljótum við í stjórnarandstöðunni að spyrja: Hvar á að skera niður?
Hv. þm. Birkir Jón Jónsson sem hér hefur oft lagt gott til mála í efnahagsumræðu sagði í sjónvarpinu um daginn að það yrði að skera niður. Hann þvertók hins vegar fyrir að það yrði gert á velferðarsviði og nefndi sérstaklega samgöngur. En þær skattalækkanir sem við erum að tala um eru svo gríðarlegar að ef þær koma einhvern tíma til framkvæmda, sem má efast um, og ef það á að fara að aðvörunarorðum þeirra sérfræðinga sem ég nefndi þá þarf nú gott betur að skera niður en um þá 3, 4 milljarða í vegaframkvæmdum sem mig minnir að hv. þingmaður sem ég nefndi áðan hafi sérstaklega tekið til.
Ef það á t.d. á þessu kjörtímabili að lækka skatta samtals um 39 milljarða, eins og hægt er að reikna skattalækkunartillögur ríkisstjórnarinnar út frá upphafi kjörtímabilsins til enda, þá er ég ansi hræddur um að það heyrðist hljóð úr horni ef það á að fara að taka einhverjar upphæðir sem nálgast þá summu út úr rekstri ríkisins. Staðreyndin er nefnilega sú að hæstv. fjármálaráðherra hefur ekki haft beind í nefinu til þess að stemma útgjaldaþenslu ríkisins á hinum góðu árum. En á hinum góðu árum eiga menn auðvitað að safna í forða í hlöðu sinni til þess að geta gripið til hans þegar mögru árin ganga í garð. Þetta þekkjum við úr bók bókanna þar sem sérstaklega er lögð rík áhersla á að safna til mögru áranna þegar hin góðu ganga í garð. Það hefur hæstv. fjármálaráðherra ekki tekist.
Þessi ríkisstjórn tók til starfa 1995 með þá yfirlýsingu á vörunum að hún ætlaði að draga úr framleiðslu um sem svaraði 2% á ári í eitthvert tímabil. Niðurstaðan hefur orðið þveröfug. Þessi ríkisstjórn hefur í reynd látið útgjaldaþróunina fylgja með þeirri tímabundnu sveiflu upp á við sem hefur gætt og við höfum auðvitað fundið sterklega stað í efnahagslífinu. Hún hefur bara ekki safnað forða.
Allar áætlanir hæstv. fjármálaráðherra um að skila afgangi til þess að búa til forða til mögru áranna hafa hrunið eins og spilaborg. Svo hefur hæstv. fjármálaráðherra komið hingað og vælt í fjölmiðlum og við þingmenn um það að ekki sé hægt að bera saman þau áform og áætlanir sem hann kemur fram með í fjárlagafrumvarpinu við niðurstöður ríkisreikninga. Þetta er svo hlægilegt, frú forseti, að það tekur ekki nokkru tali. Er það þá þannig að hæstv. fjármálaráðherra segir það bara og viðurkennir það opinberlega að menn eigi ekki að trúa áætlunum hans í fjárlagafrumvarpinu, því að það er ekki hægt að draga neina aðra rökræna ályktun af því sem hæstv. ráðherra hefur verið að segja um þessi mál.
Frú forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mál lengra. Ég varpa ákveðnum spurningum til formanns fjárlaganefndar og ef hann getur svarað þeim núna verð ég glaður við. Ég mundi nú ekki bera ösku í skegg mitt eða hár þó að hann sjái sér ekki fært að svara þessu núna. Þetta er flókið mál. Ég geri mér grein fyrir því. Það er kannski erfitt fyrir hann, ef hann ætlar sér að komast að rökrænni og skynsamlegri niðurstöðu, að gera það þannig að hann verði algjörlega úr takti við hæstv. ráðherra. En hann kemst ekki að skynsamlegri niðurstöðu, sem er niðurstaða Ríkisendurskoðunar, nema að vera í andstöðu við hæstv. fjármálaráðherra. En ég veit það hins vegar að skynsemd hv. formanns fjárlaganefndar og sú þekking sem hann hefur á fjármálum ríkisins getur ekki leitt hann að annarri niðurstöðu.