131. löggjafarþing — 45. fundur,  30. nóv. 2004.

Málefni aldraðra.

85. mál
[16:57]

Frsm. heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz) (F) (andsvar):

Herra forseti. Það er ekki miklu við þetta að bæta, bara að halda því til haga að þeir sem eru 70 ára og eldri borga ekki gjald í framkvæmdasjóðinn og ekki þeir sem eru á hjúkrunar- og dvalarheimilum og eru undir sjötugu. Það er því engin breyting sem felst í því með breytingartillögunni.

Af því að hv. þingmaður hafði orð á því að þetta væri ekki orðið að lögum árétta ég að stjórnarflokkarnir munu standa við kosningaloforð sín og þær skattalækkanir sem frumvarpið felur í sér. Það felur jafnframt í sér að breytingartillagan er óþörf, vegna þess að hún tryggir að fólk með þessi tekjumörk, samanlagða fjárhæð grunnlífeyris, tekjutryggingar og tekjutryggingarauka greiðir ekki gjaldið. Það má því segja að málið sé í höfn með skattalækkun ríkisstjórnarflokkanna.