Bifreiðagjöld.
Halldór Blöndal (S) (andsvar):
Herra forseti. Áður en gripið var fram í í ræðu Jóns Gunnarssonar áðan, 10. þm. Suðurk., og hann leiðréttur hélt hann því fram að það væri vilji ríkisstjórnarinnar og þingmeirihlutans að hækka öll gjöld sem næmi þróun verðlags. Vísvitandi ósannindi að sjálfsögðu vegna þess að í því frumvarpi sem hér er til umræðu er gert ráð fyrir að bifreiðagjald hækki um 3,5% en verðbólga hefur hækkað um 7%, vísitala neysluverðs, síðan þetta gjald var hækkað síðast. Þarna voru ósannindin með öðrum orðum 100%. Ef við tökum annað frumvarp sem var rætt hér, um aukatekjur ríkissjóðs, þá er gert ráð fyrir að gjöldin hækki um 10% en neysluverð hefur hækkað um 34% frá árinu 1997 sem eru samanburðartölurnar. Þingmaðurinn fór því vísvitandi rangt með.
(Forseti (GÁS): Hv. þingmaður.)
Hv. þingmaður fór vísvitandi rangt með, sem er auðvitað sorglegt vegna þess að það ruglar allar umræður og gerir auðvitað mjög örðugt fyrir um skoðanaskipti þegar þannig er haldið á málum. En það er eins og við vitum að „hálfsannleikur oftast er óhrekjandi lygi“, og hv. þm. er auðvitað að reyna að læða því inn hjá fólki að hér sé verið að hækka gjöldin meira en gert er og reyna að læða því inn hjá fólki að ríkisstjórnin sé að beita sér fyrir hækkun þessara gjalda á öðrum forsendum en hann sjálfur veit að eru réttar. Það ber auðvitað að harma slíkan málflutning og er það ekki hv. þm. til sóma ef hann ætlar að halda honum áfram.