131. löggjafarþing — 45. fundur,  30. nóv. 2004.

Bifreiðagjöld.

377. mál
[17:48]

Halldór Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég er mjög ánægður yfir því að hv. þm. skuli taka það til greina, bæði það sem ég sagði í frammíkalli og það sem ég sagði áðan. Með leyfi hæstv. forseta, stendur hér:

„Í frumvarpi þessu er að finna tillögu að hækkun margvíslegra gjalda sem flest hver hafa haldist óbreytt að krónutölu frá árinu 1997 eða lengur.“

Ekki er hægt í andsvari að rekja hvern lið fyrir sig en við vitum auðvitað ofur vel að á bak við ræðu hv. þm. var ekki vilji til að upplýsa það mál sem við erum að tala um og það er það dapurlega við málflutning hans og raunar málflutning ýmissa annarra úr Samfylkingunni sem hafa kvatt sér hljóðs og rætt um skattamál upp á síðkastið. Þannig er t.d. ekki hægt að skilja hv. þm. öðruvísi en svo, fremur en ýmsa aðra samfylkingarmenn, að vilji hans standi raunverulega til þess að fella úr gildi allar aukatekjur ríkissjóðs en hækka tekjuskattinn í staðinn ef draga má ályktun af því hvernig hv. þingmenn leggja upp mál sitt.

Nú er ég á hinn bóginn þeirrar skoðunar að hv. þm. telji nauðsynlegt að halda aukatekjum ríkissjóðs. Ég tel víst að hv. þm. geri sér grein fyrir því að nauðsynlegt sé að hafa skattheimtu ríkisins með margvíslegum hætti til þess að draga úr líkum á skattsvikum. Einn þátturinn í því að draga úr líkum á skattsvikum er sá að reyna að dreifa tekjuöflun ríkissjóðs og það er það sem við erum að gera með þessu frumvarpi og ég hygg að óhjákvæmilegt sé, ef hv. þm. vill í raun skilja það sem á bak við hvílir, að hann velti því fyrir sér hvort ekki sé nauðsynlegt að þannig sé haldið á málum.