131. löggjafarþing — 47. fundur, 2. des. 2004.
Húsnæðismál.
220. mál
[15:23]
Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (um atkvæðagreiðslu):
Hæstv. forseti. Þegar hæstv. félagsmálaráðherra mælti fyrir þessu máli lýsti ég því yfir að við í Frjálslynda flokknum mundum styðja það. Skoðun okkar hefur ekki breyst að því leyti til að við teljum mikla þörf fyrir Íbúðalánasjóð. Að sjálfsögðu fylgjum við þessu máli og sannfæringu okkar í því.