Rannsóknir og nýting á jarðrænum auðlindum.
iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég er ekki að kveinka mér en mér fannst ekki allt málefnalegt sem kom fram hjá hv. þingmanni í fyrri ræðu hennar. Það var talað um óðagot, bráðræði og nýtingaroffors og eitthvað slíkt sem mér finnst ekki vera sérstaklega málefnalegt.
Hvað varðar þetta heiti, hvort vatn geti verið þarna innifalið, er það ólífrænt efni og það er þannig skilið frá lífrænum auðlindum. Ég held að ekki sé hægt að útskýra það neitt sérstaklega mikið frekar. Þetta er heitið á frumvarpinu og auðvitað er hægt að fjalla um það í hv. nefnd hvort það sé eitthvað óskynsamlegt við það.
Ef það er ekki búið að dreifa vatnalagafrumvarpinu hlýtur það alveg að vera að koma inn í þingið. Ég var búin að tala um 1. gr. og tel að ég þurfi ekki að útskýra hana frekar. Það er ekki hægt að koma öllu fyrir í greininni sjálfri, hins vegar skiptir greinargerðin að sjálfsögðu máli.
Árósasamningurinn, ég veit ekki hvort ég á að fjalla eitthvað sérstaklega um hann. Hann er ekki á mínu borði en einhver vinna tel ég að sé í gangi í sambandi við það mál.
Ég veit ekki hvort það var fleira sem hv. þingmaður saknaði að hefði ekki verið svarað.