Fjárlög 2005.
Jón Gunnarsson (Sf) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson sagði að tekjur í ríkissjóði á árinu 2005 mundu aukast ef spá Seðlabankans gengi eftir. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni. En það kæmi ekki eitt til heldur og allar þær auknu álögur sem ríkisstjórnin hefur lagt á launþega þessa lands. Mér endist varla ein mínúta í andsvari til að telja þær allar upp en ég ætla að reyna.
Skólagjöld, háskólagjöld, 140 millj. kr. Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, 70 millj. kr. Aukatekjur ríkissjóðs, 200 millj. kr. Umsýslugjald fasteigna, 280 millj. kr. Áfengisgjald, 340 millj. kr. Bifreiðagjald, 120 millj. kr. Vaxtabætur, 1.500 millj. kr. Olíugjald, 350 millj. kr. Sjúkratryggingar, 1.500 millj. kr. Komugjöld á heilsugæslustöðvar, 150 millj. kr. Vörugjald af bensíni, 1.200 millj. kr. Þungaskattur 800 millj. kr. Barnabætur 300 millj. kr. (GAK: Allt frá 19. febrúar.)
Ég rétt hafði þetta á þeim tíma sem ég hafði en þarna sést hvað ríkisstjórnin hefur verið að gera. Ég vil spyrja hv. þingmann, þar sem hann er vanur að kalla hlutina réttum nöfnum: Er þetta skattalækkun eða er þetta gjaldahækkun?