Fjárlög 2005.
Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu er það svo að forráðamenn ríkisstjórnarinnar, ríkisstjórnin sjálf og stuðningsmenn hennar, hafa í gegnum tíðina gætt ríkissjóðs mjög vel, passað upp á að hann sé rekinn með þokkalegum afgangi, passað upp á að hann geti borgað niður skuldir frá óráðsíutímunum, þannig að ríkissjóður Íslands er í miklu jafnvægi. Til þess er notað bæði gjöld og skattar sem lagðir eru á borgarana. Hvort tveggja hefur verið gert núna, gjöld hafa verið hækkuð gjöld og skattar lækkaðir. Svo segja menn þegar skattarnir eru lækkaðir að það hafi svo mikil þensluáhrif. En þegar menn segja að tekjurnar séu í jafnvægi, heildartekjurnar, hver eru þá þensluáhrifin? Þessi umræða hefur engan tilgang, virðulegi forseti. Ríkissjóður er í tiltölulega góðum málum hér á landi. Það hefur margsinnis komið fram og við ætlum að halda honum þannig. Það gefur okkur svigrúm til að halda áfram á sömu braut.