Fjárlög 2005.
Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég fagna því að hv. þingmaður skuli hafa lagt til hliðar orðið misnotkun í þessari umræðu og treysti því að svo verði framvegis þannig að hún geti verið með málefnalegum hætti. Ég lýsi enn þá eftir þeim 500 millj. sem vantar í samkomulagið því að samkomulagið er samkomulag ríkisstjórnar Íslands, hv. þingmaður. En mér virðist þó af ræðum hv. þingmanns eins og að hér standi ekki lengur bjargvætturinn í ræðustól á Alþingi heldur fórnarlambið því að staða efnahagsmála virðist vera öllum öðrum í landinu að kenna. Staða efnahagsmála er ýmist öryrkjum að kenna, kennurum, bönkum eða Seðlabankanum. En hví reiðist hv. þingmaður? Hann reiðist vegna þess að Seðlabankinn og allar helstu fjármálastofnanir landsins eru sammála um að því miður sé ekki mark að fjárlögunum heldur sýni sagan síðustu ár að það vanti yfirleitt um 20 þús. millj. inn í útgjaldaáætlanir fjárlaganna og það er það aðhaldsleysi sem hv. þm. veit og þekkir og reiðist yfir að hefur nú verið afhjúpað.