Fjárlög 2005.
Helgi Hjörvar (Sf) (um fundarstjórn):
Virðulegur forseti. Ég kemst ekki hjá því að vera fullkomlega ósammála hv. þm. Magnúsi Stefánssyni, formanni fjárlaganefndar. Það var auðvitað alveg augljóst af ræðu hans þegar frumvarpið kom til 3. umr. á innan við mínútu, trúi ég, í ræðustólnum þar sem engar breytingartilögur eru gerðar frá því að það var afgreitt við 2. umr. að það virðist ríkja algert metnaðarleysi af hálfu stjórnarmeirihlutans um frumvarpið sjálft, um forsendur þess og um að áætlanir þess gangi eftir. Ég harma það að hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson, sem hefur stundum í þingsölum verið talsmaður aðhalds, skuli taka undir þann söng að horfast ekki í augu við þann útgjaldavanda sem vantar í þetta frumvarp og allir vita af. Ég hef satt að segja sjaldan kynnst öðrum eins vinnubrögðum og hér í þinginu.
Ég tek sem dæmi að í gær var dreift stjórnarfrumvarpi, sem kynnt hefur verið í þingflokkum stjórnarflokkanna, um Tækniháskóla Íslands og í kostnaðarmati fjármálaráðuneytisins segir að kostnaður vegna samþykktar frumvarpsins verði á bilinu 130–150 millj. kr. á næsta ári, árið 2005. Þær 130–150 millj. kr. er ekki að finna í frumvarpinu sem á svo að afgreiða á morgun, þ.e. sama ríkisstjórnin flytur útgjaldafrumvarp á fimmtudegi og ætlar að afgreiða fjárlög á laugardegi sem ekki gerir ráð fyrir útgjöldum þannig að metnaðarleysi stjórnvalda í þessu efni er algert eins og sést af því að frávikin hafa verið 20 þús. millj. kr. á hverju ári. Og jafnvel Seðlabankinn verður að leiðrétta áætlanir ríkisstjórnarinnar í spám sínum og gera ráð fyrir því að fjárlagafrumvarpið sem Alþingi Íslendinga skili frá sér sé vitlaust. Seðlabanki Íslands þarf að ganga út frá því sem gefinni staðreynd að Alþingi Íslendinga geti ekki skilað frá sér réttum fjárlögum. Ég tel að það sé fullkomlega óviðunandi fyrir hið háa Alþingi og það sé algerlega fráleitt að afgreiða fjárlagafrumvarp í desember og endurskoða síðan allar forsendur þess í janúar. Úr því að það þarf að endurskoða allar forsendur fjárlagafrumvarpsins þá er eins gott að menn taki sér þann tíma sem þarf í desember til þess að gera það þannig að þingið geti skilað af sér sæmilega réttu plaggi. Það getur verið að fjárlaganefnd þurfi eina viku til þess eða tvær en ég bendi líka á að meðhöndlun málsins í hv. efnahags- og viðskiptanefnd var fyrir neðan allar hellur og það liggur ekkert faglegt mat fyrir hendi um tekjukafla fjárlagafrumvarpsins vegna þess að það vannst enginn tími eða var nein aðstaða í efnahags- og viðskiptanefnd til að fara sómasamlega yfir málið. Ég tel ekki að hið háa Alþingi geti afgreitt annað eins grundvallargagn frá sér með slíkum og þvílíkum handarbakavinnubrögðum.