Fjárlög 2005.
Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég vil, eins og fleiri ræðumenn, biðja hæstv. forseta að skoða hug sinn vel um það hvort ekki sé skynsamlegt að gera hlé á umræðunni. Það getur varla sakað að menn hittist og ræði málin. Það er ágætlega rökstutt hér og liggur fyrir að það eru breyttar forsendur frá því að fjárlagafrumvarpið var lagt fram og jafnvel frá því sem þeir héldu að mundi verða þegar það yrði afgreitt núna. Það þarf ekki annað en að skoða gengið og þróun þess og viðbrögð þess við ákvörðunum Seðlabankans til að sjá að þar eru alvarlegir hlutir á ferð sem snúa að stöðu atvinnulífsins. Þar er auðvitað á ferð fyrst og fremst hinn dýri herkostnaður vegna stóriðjustefnunnar. Það er augljóst mál að stóriðjufjárfestingarnar og væntingarnar sem þeim tengjast halda uppi genginu og þegar Seðlabankinn á engin önnur úrræði að eigin mati en að keyra upp vextina stefnir náttúrlega í mikið óefni. Það munar um minna en heilla 10% mun á gengisvísitölunni ef hún er í 115 í staðinn fyrir þau 125 sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að hún sé.
Það er ástæða til að óttast, þegar maður ber saman ýmsar aðstæður nú við það sem var t.d. 1987 og aftur 2001 í aðdraganda gengiskollsteypanna og erfiðleikanna þá. Þetta veit ég að hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson kann og veit og kannski á það sinn þátt í því hvernig hann tekur hér til orða.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að nefnd kalli mál til sín á hvaða stigi sem er, samanber ákvæði í 23. gr. þingskapa. Ég man fyrir víst að það hefur gerst að samkomulag hefur orðið um að nefnd tæki mál aftur til sín í miðri umræðu. Mig rekur ekki minni til að um það hafi verið greidd atkvæði, en ég man að samkomulag hefur tekist um slíkt þegar menn hafa orðið ásáttir um að gera breytingar á frumvarpi eða að breyttar aðstæður væru orðnar, hafi menn náð samkomulagi um að umræðu yrði frestað og mál tekið aftur til nefndar og skilað framhaldsnefndaráliti. Ég fullyrði að það eru mörg fordæmi fyrir slíku, kannski ekki fyrir því að það hafi verið knúið fram með tillögu.
Það er athyglisvert að eina framsöguræða meiri hlutans hér við 3. umr. fjárlaga er ræða hv. þm. Einars Odds Kristjánssonar. Það er auðvitað ekki hægt að kalla einnar mínútu kurteisisræðu hv. þm. Magnúsar Stefánssonar framsöguræðu. Ekki heldur mjög stutta ræðu Gunnars Birgissonar sem mælti fyrir nefndaráliti um heiðurslaun listamanna. Nei, eina framsöguræðan fyrir meiri hlutann er ræða hv. þm. Einars Odds Kristjánssonar, og út á hvað gekk hún? Hún gekk út á að forsendur fjárlagafrumvarpsins væru brostnar, algerlega brostnar, og það stefndi í hreint óefni vegna aðgerða Seðlabankans.
Það er fagnaðarefni að hæstv. forsætisráðherra er kominn hér og lýsir kannski hug sínum til þessara mála. Ég tel það sanngjarna og vel rökstudda ósk að umræðunni verði nú frestað, það verði skotið á fundi (Forseti hringir.) og helst náist samkomulag um að nefndirnar taki málið aftur til sín og vinni það betur.