Fjárlög 2005.
forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F) (um fundarstjórn):
Herra forseti. Hv. þingmenn hafa kvartað yfir því að ráðherrar væru ekki hér til að ræða þau mál sem hér eru til umræðu. Ég heyri að margir hv. þingmenn vilja gera hlé og breyta ýmsu vegna þess að komið hafi fram nýjar upplýsingar frá Seðlabankanum.
Ríkisstjórnin byggir á þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins og engin ástæða til að breyta því. Þjóðhagsspá Seðlabankans er nokkuð frábrugðin að því leyti til að hún gerir ráð fyrir 6,1% hagvexti á næsta ári en ríkisstjórnin byggir á því að hagvöxtur verði 5% á næsta ári. Seðlabankinn byggir á því að viðskiptahalli verði heldur minni.
Þjóðhagsspá Seðlabankans er að því leyti úrelt að hún byggir á því að stýrivextir Seðlabankans verði 7,25%. Nú hefur Seðlabankinn ákveðið að hækka stýrivexti í 8,25%, sem væntanlega mun draga úr hagvexti. Ég tel ljóst að hærri vextir komi til með að draga úr hagvexti. Þess vegna er engin ástæða til að breyta til. Í báðum tilfellum er um spá að ræða og við byggjum áfram á þeirri spá sem liggur til grundvallar fjárlagafrumvarpinu. Það er engin ástæða til að rjúka upp til handa og fóta og breyta fjárlagafrumvarpinu.
Það kann vel að vera, ef spá Seðlabankans rætist, þótt ekki væri nema að einhverju leyti, að afgangurinn á fjárlögum verði meiri. Er það ekki það sem hv. þingmenn eru að biðja um, að afgangurinn verði meiri og afkoma ríkissjóðs betri? Ég sé ekki ástæðu til að gera hlé til að fara ofan í það. Það væri ánægjulegt ef það mundi gerast og við skulum vona að það gangi eftir.
Hins vegar er alveg ljóst að hærri stýrivextir munu að mínu mati draga úr hagvexti á nýjan leik.