Fjárlög 2005.
Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):
Hæstv. forseti. Þau ósköp ganga á í þessu máli að hæstv. dómsmálaráðherra og hæstv. utanríkisráðherra gerast æðitortryggnir og tortryggilegir í þessu máli þegar það er skoðað að Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur gegnt því hlutverki að fylgjast með og gera skýrslur til alþjóðastofnana um starfsemi íslenskra stjórnvalda. Hún hefur gegnt því hlutverki að gefa umsagnir um lagafrumvörp íslenskra stjórnvalda. Hún hefur verið gagnrýnin á frumvörp sem hafa komið frá hæstv. dómsmálaráðherra og ég verst ekki þeirri hugsun, eins og ég hef reyndar getið um í pistlum á heimasíðu minni og fleiri hafa getið um á opinberum vettvangi, að hér sé verið að refsa Mannréttindaskrifstofu Íslands. Ég vil að hæstv. forsætisráðherra sverji það af sér og ríkisstjórn sinni ef svo er ekki og hann hefur tækifæri til að gera það hér.
Ég vil líka að hæstv. forsætisráðherra svari því ákalli sem komið hefur frá aðilum sem starfa að mannréttindamálum, ekki bara á Íslandi heldur vítt og breitt í nágrannalöndum okkar, sem mótmæla þessu ráðslagi.