131. löggjafarþing — 48. fundur,  3. des. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[20:47]

Jón Gunnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vildi að ég væri eins og hæstv. fjármálaráðherra með það að hafa svona mótefni gegn miður góðum tíðindum. Ég held að flestir hverjir sem lesið hafa Peningamál Seðlabanka Íslands sem komu út í gær hafi lesið þau með öðrum hætti en hæstv. fjármálaráðherra. Hv. varaformaður fjárlaganefndar vildi t.d. skjóta sendiboðann eða leggja hann niður vegna þeirra frétta sem hann kom með.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Er aldrei ástæða til að endurskoða þjóðhagsspá ráðuneytisins oftar en gert er? Ef forsendur fyrir þjóðhagsspánni bresta hver af annarri eins og varðandi framvindu stóriðjuframkvæmda, gengisvísitalan, launasamningar, vaxtastigið, er þá aldrei ástæða til að endurskoða þjóðhagsspána örar?