131. löggjafarþing — 48. fundur,  3. des. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[20:49]

fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er aftur svo með þessa spurningu að við henni er ekkert eitt svar til. Það geta vel verið þannig stofnanir að það sé eðlilegt að taka þær sérstaklega út úr og fara yfir þeirra mál en það eru hugsanlega aðrar stofnanir þar sem það væri ekki eðlilegt eða réttlætanlegt. Svo eru stofnanir sem byrja með halla og eru að vinna sig út úr honum á nokkrum árum. Það er allur gangur í þessu eins og við vitum og erfitt að alhæfa um það. Ég er hins vegar alveg sammála því sem er undirliggjandi í máli þingmannsins, nefnilega því að við verðum að gera það sem við getum, hér í þinginu og í Stjórnarráðinu, til að bæta áætlanagerðina og gera þannig að það sé auðveldara að gera þá kröfu til forstöðumannanna að þeir geti almennilega borið ábyrgð á stofnunum sínum og rekið þær eins og ætlast er til þegar fjárlög eru samþykkt.