Fjárlög 2005.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (um atkvæðagreiðslu):
Hæstv. forseti. Með verkum sínum við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2005 og fjárlaganna sl. haust fyrir árið 2004 hefur ríkisstjórnin þegar tekið meira inn í tekjum með nýjum álögum en sem nemur fyrirhugaðri skattalækkun næsta árs, skattalækkun sem fyrst og fremst færir fjármuni til þeirra sem hærri hafa tekjurnar. Sjá má í nefndaráliti 1. minni hluta upptalningu á nýjum tekjum sem lagðar voru á á þessu ári og því fyrra.
Afgreiðsla fjárlaga nú er á ábyrgð stjórnarþingmanna enda mun margt þurfa að lagfæra með fjáraukalögum á næsta ári, hæstv. forseti.