131. löggjafarþing — 49. fundur,  4. des. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[11:40]

Þuríður Backman (Vg):

Herra forseti. Það er allt í lagi að rugla nafnaröðinni svo fremi að ég fái að greiða hér atkvæði og gera grein fyrir því. Með þessari breytingartillögu er verið að tryggja, ekki eingöngu fjármagn heldur sjálfstæði Mannréttindaskrifstofu Íslands. Það er það sem skiptir máli í þessari breytingartillögu.

Skrifstofan þarf að vera jafnsjálfstæð og umboðsmaður Alþingis. Sú hegðan sem hér birtist gerir ekkert annað en að skapa tortryggni hér á landi sem erlendis. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til að líta til allra þeirra fjölmörgu áskorana sem hafa komið frá virtum félögum og stofnunum sem láta sig mannréttindamál varða, bæði hér á landi og erlendis. Þingmaðurinn segir já.