Fjárlög 2005.
Jón Bjarnason (Vg):
Herra forseti. Erfið fjárhagsstaða margra sveitarfélaga nú er ein alvarlegasta ógnunin við velferðarkerfið í landinu. Ríki og sveitarfélög bera sameiginlega ábyrgð á því að halda uppi velferðarþjónustunni. Þar ríkir að vísu ákveðin verkaskipting. Sú hefur orðið raunin nú að skipting tekna milli ríkis og sveitarfélaga hefur skekkst mjög, sveitarfélögunum í óhag. Þau hafa fengið aukin verkefni án þess að tekjustofnar hafi fylgt. Mörg sveitarfélög eru nú rekin með gríðarlegum halla. Þau verða að selja eignir sínar, veitur, jafnvel skóla, til að fjármagna rekstur sinn. Þessi staða er fullkomlega óábyrg af hálfu ríkisvaldsins. Orð hæstv. félagsmálaráðherra sýna að hann áttar sig hreinlega ekki á um hvað málið snýst.
Hér er lagt til að til bráðabirgða, meðan verið er að endurskoða tekjustofna sveitarfélaga, verði veittar á fjárlögum næsta árs að lágmarki 700 millj. kr. sem fara í gegnum jöfnunarsjóðinn því að það er sá farvegur sem fyrir hendi er til styrktar þeim sveitarfélögum sem verst standa.