Fjárlög 2005.
viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):
Hæstv. forseti. Ríkisstjórnin hefur komist að niðurstöðu um að lækka tekjuskatt í áföngum um 4%. Skattleysismörk hækka úr rúmlega 71 þús. kr. upp í tæp 86 þús. Barnabætur hækka um 2,4 milljarða, þ.e. um helming. Endurgreiðsluhlutfall námslána lækkar um 1%, eignarskattur er afnuminn.
Áhrifin á kaupmátt almennings eru mikil. Dæmi: Ráðstöfunartekjur foreldris með eitt barn undir 7 ára aldri með 125 þús. kr. á mánuði hækka um 10%. Ráðstöfunartekjur hjóna með 300 þús. kr. á mánuði samanlagt, tvö börn, hækka um 23.500 á mánuði. Sparnaður sömu fjölskyldu ef matarskattur svokallaður væri lækkaður úr 14% í 7% eru 46 þús. á ári, þ.e. 4 þús. kr. á mánuði (KLM: Hvað með vísitölu neysluverðs?) þannig að ríkisstjórnin komst að hárréttri niðurstöðu fyrir almenning í landinu.