Fjárlög 2005.
Þuríður Backman (Vg):
Hæstv. forseti. Hér er um að ræða tillögu um 30 millj. kr. framlag til þeirra 11 upplýsingamiðstöðva sem starfræktar eru víða um land. Að hluta til eru upplýsingamiðstöðvarnar fjármagnaðar með fé af fjárlögum en fá ekki bein framlög samkvæmt frumvarpinu. Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein og hefur mikla möguleika í hinum dreifðu byggðum ef fjármagn fæst til að sinna undirstöðu greinarinnar, þ.e. upplýsingamiðlun þjónustumiðstöðvanna.
Þessi auknu umsvif kalla fyrst og fremst á fjölgun starfsmanna og stærra vinnurými til að hafa undan eftirspurn um hlutlausar upplýsingar sem eru m.a. um ákvörðunarstað, gistingu, bílaleigu, afþreyingu, rútuferðir, akstur, vegi, færð og veður. Ferðamálasamtök Íslands hafa margítrekað bent á nauðsyn þess að auka framlög til þessa mikilvæga grunnverkefnis. Hér er um að ræða mikilvægt verkefni sem mun stuðla að því að gera íslenskri ferðaþjónustu kleift að taka á móti vaxandi fjölda ferðamanna og styrkja fjölbreytta atvinnustarfsemi úti um allt land. Ég segi já.