Ummæli forsætisráðherra í sjónvarpinu.
forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):
Herra forseti. Það liggur alveg ljóst fyrir að þessi ákvörðun, eins og margar aðrar, var erfið. Ég minnist þess þó að eitt sinn var hér flokkur sem hét Alþýðuflokkur og fór lengi með utanríkismál. Það vildi svo til að sá flokkur axlaði ábyrgð í þeim málum alla tíð. Þær ákvarðanir voru ekki alltaf fallnar til vinsælda en ráðherrar þess flokks öxluðu ábyrgð. Með sama hætti höfum við axlað ábyrgð í þessu viðkvæma máli.
Mér finnst vera kominn tími til að stjórnarandstaðan upplýsi almennilega afstöðu sína til ályktunar 1456 af hálfu Sameinuðu þjóðanna. (Gripið fram í.) Það liggur fyrir að fjölþjóðaherinn sækir í dag umboð sitt til Sameinuðu þjóðanna. Bráðabirgðastjórnin í Írak sækir umboð sitt til Sameinuðu þjóðanna. Það er verið að berjast fyrir lýðræðislegri uppbyggingu í Írak og kosningum.
Mér er spurn: Hver er afstaða stjórnarandstöðunnar til þessarar ályktunar? Er hún sú sama og danskra jafnaðarmanna sem styðja hana og styðja það að Danmörk taki þátt í þessari uppbyggingu? Er afstaða Samfylkingarinnar og Vinstri grænna sú sama eða hafa þeir enga afstöðu til ályktunar 1456?
Það liggur alveg ljóst fyrir að allt sem er að gerast í Írak í dag er ekki á grundvelli 1441, heldur á grundvelli 1456. Ég tel tíma til kominn að menn hætti að ræða einu sinni í viku um fortíðina og fari að ræða það sem er að gerast í dag í Írak. (Gripið fram í.)