Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.
Einar Már Sigurðarson (Sf) (andsvar):
Herra forseti. Ég var að vonast til þess að hæstv. menntamálaráðherra yrði ögn málefnalegri í þeirri umræðu sem hér fer fram því hún er býsna mikilvæg. Verið er að taka afskaplega afdrifaríka ákvörðun, þ.e. í fyrsta skipti er einkahlutafélagsformið valið á háskólastigi. Það voru því miður ekki nægileg rök sem komu fram í svörum hæstv. ráðherra í andsvörum áðan. Það er auðvitað eðlilegt að fulltrúar atvinnulífsins sem vinna í svona umhverfi vilji horfa til þess þegar þeir koma að háskólarekstri. En ég hlýt að spyrja hæstv. ráðherra: Kom það fram sem krafa af hálfu þeirra aðila sem viðræðurnar voru við að þetta form yrði valið og getur verið að einhver vandi hafi komið upp í rekstri Háskólans í Reykjavík, sem er sjálfseignarstofnun, sem er ástæðan fyrir því að þessi leið er valin? Það er alveg nauðsynlegt að þetta verði upplýst strax við byrjun umræðunnar. Hvað ræður því að þetta form er valið?
Það er nær fordæmalaust í háskólum heimsins að þetta form skuli vera valið og er sérkennilegt þegar við erum að stíga þessi skref, eins og hæstv. ráðherra segir þá erum við að þróa hér sjálfseignarstofnanir á háskólastigi sem mörgum hverjum hefur gengið býsna vel og ég hef ekki heyrt áður að væri neitt vandamál með það form. Þess vegna er alveg nauðsynlegt að hæstv. ráðherra skýri það fyrir okkur af hverju þetta form er valið.
Einnig er nauðsynlegt að hæstv. ráðherra skýri það út fyrir okkur hvernig eigi að tryggja akademískt frelsi starfsfólksins þannig að starfsfólkið hafi eðlileg áhrif á stjórnun og stefnumótun í stofnuninni, vegna þess að í þeim takmörkuðu upplýsingum sem við höfum séð virðist stjórn félagsins einnig vera háskólaráð. Það verður að segjast alveg eins og er að það er vægt til orða tekið afar sérstakt og mjög hæpið við rekstur á háskóla að slíkt skuli vera ákveðið.