131. löggjafarþing — 51. fundur,  7. des. 2004.

Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.

398. mál
[14:52]

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég mótmæli því að efling háskólastigsins hafi verið á kostnað opinberu háskólanna. Svo hefur aldeilis ekki verið heldur hafa fjárframlög til allra ríkisháskólanna aukist verulega á undanförnum missirum.

Hins vegar er greinilegt að ég hef snert mjög viðkvæma taug í brjóstum háttvirtra stjórnarandstöðuþingmanna. Það er bersýnilega viðkvæmt þegar við tölum um sjálfstæðu háskólana. Við skulum enn og aftur rifja upp að pólitísk ákvörðun var tekin um að setja á stofn og reyna að stuðla að fjölbreytni í háskólasamfélaginu, m.a. að stuðla að því að hér mundu spretta upp, vaxa og dafna blómlegir sjálfstæðir háskólar. Til þess höfum við ekki fengið mjög mikinn stuðning stjórnarandstöðunnar fram til þessa. (KolH: Hvað um skólagjöld frumgreinanema?)