131. löggjafarþing — 51. fundur,  7. des. 2004.

Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.

398. mál
[17:14]

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég samgleðst hinni barnslegu kæti þingmannsins yfir Samfylkingunni. Hún er fölskvalaus og falleg og var ágætur endir á hans ágætu ræðu.

Hann gat sérstaklega um það að plaggið sem hann las svo vel og skýrt upp úr er umræðuplagg úr framtíðarhópi Samfylkingarinnar sem er eini flokkurinn á Íslandi sem þorir að taka opinskáa og hreinskipta umræðu um kosti og galla hinna ýmsu rekstrarforma, kosti og galla skólagjalda. Það er ekki farið í feluleik, baktjaldamakk og þau undirmál sem því fylgja að lauma hlutunum að eins og hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson fjallaði um áðan, að fara fjallabaksleið að því að innleiða skólagjöld á grunnnám í ríkisháskólana.

Stefna Samfylkingarinnar er alveg skýr. Hún hafnar eindregið skólagjöldum í grunnnám Háskóla Íslands. Hvort umræðuplagg framtíðarhópsins leiðir til breytinga á stefnunni kemur í ljós á landsfundinum næsta haust. Við skulum sjá hvað setur þar. Ég fagna umræðunni og tek undir það að plaggið er gott og þar er opnað með hreinskiptum hætti á hinar ýmsu leiðir.

Ég vil spyrja þingmanninn upp úr ræðu hans hvort hann telji að það að innheimta skólagjöld á tækninám í grunnnámi á Íslandi leiði til þess að á bresti fjöldaflótti nemenda til Norðurlandanna þar sem ekki eru innheimt skólagjöld. Í öðru lagi: Tekur hann undir með hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni? Er hér um að ræða frekar dapurlega fjallabaksleið að upptöku skólagjalda í ríkisháskólunum þar sem menn hafa ekki pólitískan kjark til að koma framan að málinu, heldur hendast á það aftan frá? Í þriðja lagi: Hvað segir hann um jafnstöðu ríkisháskólanna á við hina einkareknu þar sem hinir einkareknu hafa heimild til innheimtu skólagjalda en ekki hinir? Finnst hv. þingmanni að heimila eigi ríkisháskólunum að innheimta jafnhá skólagjöld til að jafnstöðu sé þar náð við hina einkareknu sjálfseignarskóla?