131. löggjafarþing — 51. fundur,  7. des. 2004.

Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.

398. mál
[17:32]

Jóhann Ársælsson (Sf):

Virðulegi forseti. Menn voru að sleppa orðinu um skólagjöld. Eftir þá umræðu í sölum Alþingis stendur maður einhvern veginn alltaf með þá tilfinningu að menn átti sig ekki á því hvað er átt við með orðinu skólagjöld. Eru skólagjöld ekki öll gjöld sem eru tekin fyrir að fá einhvers konar þjónustu í skólum? Verða menn ekki að komast til ráðs við að kalla hlutina sínum réttu nöfnum? Er meiningin að skilgreina einhverja sérstaka þjónustu í skólunum ekki sem skólagjöld og aðra þjónustu sem skólagjöld? Verða menn ekki að kalla það réttum nöfnum, kalla það endurgjald fyrir kennslu eða kennslugjöld sem menn borga ef menn ætla að skilgreina þetta í sundur, sem ég tel reyndar enga ástæðu til.

Mér finnst alveg furðulegt að hlusta á mörg andsvör í umræðunni og síðan ræðu hv. þm. Sigurðar Kára Kristjánssonar í dag sem gekk út á að hann var að koma þingheimi í skilning um að hann hefði fylgst með því sem Samfylkingin væri að gera hvað varðar umræðu um skólagjöld og fann út að komin væri stefna hjá Samfylkingunni sem færi saman við stefnu a.m.k. Heimdallar. Ég heyrði hann nú aldrei segja Sjálfstæðisflokksins, (Gripið fram í: SUS ...) Já, og kannski SUS, en Sjálfstæðisflokkinn nefndi hann ekki að ég hygg. Við höfum verið tekin í einhvers konar óvissuferð varðandi vilja stjórnvalda hvað varðar skólagjöld, af því að ekki er sett á borðið hvað menn ætla sér. Það liggur hvergi fyrir nein skýr yfirlýsing um hvert menn ætla, hvaða gjöld menn vilja leggja á í skólum og hvernig menn ætla að skilgreina þau. Það er verkefni sem stjórnmálaflokkarnir mega ekki ýta frá sér. Menn verða að svara þeim spurningum skýrt.

Samfylkingin hefur verið að fást við þessa spurningu, m.a. í Framtíðarhópnum, og auðvitað á Samfylkingin að svara því hvað hún vill gera. Á næsta landsfundi kemur t.d. fram hvort sú tillaga sem hér var nefnd verður að niðurstöðu eða ekki. Þingmenn geta auðvitað sagt skoðun sína í sölum Alþingis, en landsfundur sker úr. En þó það hvíli þung skylda á Samfylkingunni að svara því hvað hún vill gera er enn þá þyngri skylda á stjórnarflokkunum að svara því hvað þeir vilja gera, af því þeir bera ábyrgð á niðurstöðu hvað varðar stjórn og hvernig menn fara með fjármál og styðja við þá skóla sem starfa í landinu.

Þess vegna er gjörsamlega óviðunandi að ekki skuli liggja fyrir með neinum hætti hvað menn vilja gera hvað skólagjöld varðar í háskólum landsins. Að bjóða upp á það ár eftir ár að hér séu reknir skólar sem taka mjög há skólagjöld og eru í samkeppni við ríkisháskólana eins og gert hefur verið fram að þessu, án þess að menn komist til ráðs við það hvað eigi að gera til þess að jafna þann aðstöðumun sem verður með þessum hætti er ekki hægt að sætta sig við. Sú ábyrgð liggur hjá stjórnarflokkunum og hvergi annars staðar. Þeir verða að svara þeim spurningum sem ástandið vekur upp.

Það er svo margt sem væri ástæða til að tala um í sambandi við það frumvarp sem hér liggur fyrir. Það er ástæða til þess að rifja upp hvað rekstur Tækniháskóla Íslands sagði mikla sögu um það hvernig menn litu mismunandi augum á nám í landinu. Ég geri ráð fyrir að þingmenn hafi ýmsir skoðað þá aðstöðu sem Tækniskóli Íslands hefur búið við á undanförnum árum og síðan Tækniháskólinn. Það er satt að segja ekki hægt að hrópa húrra fyrir þeirri aðstöðu.

Þess vegna er hægt að fagna því að nú skuli koma áfangi sem gefur fyrirheit um að náminu verði komið í betra horf hvað varðar aðstöðu í framtíðinni. Ég leyfi mér að segja að ég tel að endurskoða þurfi fleira en það sem gerist við að setja saman þessa tvo skóla. Ég tel að í Háskóla Íslands eigi að bjóða upp á sams konar námsleiðir og meiningin er að bjóða upp á í þessum skóla, vegna þess að munurinn á verkfræðinámi og tæknifræðinámi er ekki svo mikill og verður ekki mikill fyrr en kemur að lokaáföngunum. Þess vegna þarf námið að vera hugsað í áföngum þannig að menn séu ekki lokaðir af þegar kemur að framhaldinu. Það hefur mjög oft orðið niðurstaðan hjá mönnum sem hafa farið í tæknifræðinám að enda sem verkfræðingar ef þeir fara til útlanda t.d.

Ég sé ekki betur en það sé bráð nauðsyn á því ef menn ætla að ná þeim jákvæða árangri sem ætti að nást út úr því að vera með fleiri möguleika á skólum, að hægt sé að þjónusta hvort tveggja í Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands, bæði verkfræði- og tæknifræðinámi, með sambærilegum eða svipuðum hætti þannig að menn geti valið á milli þessara skóla og þeir geti keppt um nemendurna.

Hægt er að velta ýmsu fyrir sér í sambandi við hvernig þetta muni allt ganga. Við vitum t.d. að ekki er til húsnæði fyrir skólann. Það liggur heldur ekki fyrir með hvaða hætti menn ætla að leysa úr því. Það vill svo heppilega til að frést hefur af því að ein býsna stór og ágæt prentsmiðja sé að flytja úr húsum og þar muni losna húsnæði og ritstjórnarskrifstofur þess blaðs sem notaði prentsmiðjuna geti jafnvel líka verið til staðar. Þetta er tilviljun sem verður kannski ekki oft að það skuli einmitt gerast á sama svæði að menn sameina skóla og vantar húsnæði, að húsnæði losnar og þar er til staðar möguleiki á því að flytja starfsemi í burtu.

Ég held að rétt væri að hæstv. ráðherra gerði svolítið grein fyrir því í ræðu sinni á eftir hvaða möguleika hún sér helst hvað varðar húsnæðismál skólanna á næstunni til að leysa úr þeim vanda sem þar er, því auðvitað þarf að koma hinum nýja skóla í viðunandi húsnæði sem allra fyrst.

Ég vísa til þess sem félagar mínir hafa sagt um stjórn þessa nýja skóla. Ég held að full ástæða sé til þess að menn fari yfir það og skoði vandlega þegar ríkið á aðild að skólastarfi af þessu tagi að vel sé til vandað og að áhrifin á skólastarfið séu hugsuð fyrst og fremst út frá þörfum nemendanna sem þar eiga að fá þjónustu og kennslu, og að líka sé passað upp á þann grunn, þær eignir, það kapítal sem við eigum í Tækniháskólanum og að sá grunnur sem var til staðar sé ekki látinn grotna niður með neinum hætti.

Ég ætla ekki að hafa hér langt mál. Ég tel að menn hafi allt fram á þennan dag gert undarlegan greinarmun á þekkingarleit fólks eftir því hvort um er að ræða bóklegt nám eða nám á verksviði eða tæknisviði og löngu sé kominn tími til þess að menn líti þetta nákvæmlega sömu augum, geri leiðunum jafnt undir höfði. Það má heldur alls ekki ganga þannig fram að farið verði að gera upp á milli nemenda hvað varðar kostnað af skólanámi eftir því hvaða leiðir þeir velja í námi, ekki eftir því einu sinni hvaða möguleika það gefi á tekjum, heldur því eftir því hvað námsefnið heitir. Á það virkilega að vera þannig, að ef menn leita eftir því að verða tæknifræðingar borgi þeir miklu meira fyrir þá kennslu og þekkingarleit sína en þeir sem leita eftir því að verða verkfræðingar í gegnum Háskóla Íslands? Ætlar ríkið að standa í slíkri framtíð? Ætlar ríkið að skrifa upp á þannig verði gert upp á milli nemenda? Það er auðvitað óþolandi og verður að finna leiðir til þess að hlutirnir verði með sambærilegum hætti og að jafnræðis verði gætt gagnvart þeim nemendum sem hyggja á nám í þessum skólum.