Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.
menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S) (andsvar):
Hæstv. forseti. Mér finnst miður að heyra hv. þingmann tala um metnaðarleysi af hálfu forsvarsmanna Tækniháskóla Íslands. Þvert á móti hefur mikill metnaður verið þar til staðar og þeir, eins og ég og atvinnulífið almennt séð, sáu tækifæri í því að sameina þessa tvo góðu háskóla, Tækniháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Það er ekkert um annað ræða. Það eru gríðarleg tækifæri fyrir menntakerfið og háskólasamfélagið allt ef sameiningin kemst í gegn. Það er ekki verið að fara í einhverjar björgunaraðgerðir, síður en svo. Verið er að byggja upp öflugan háskóla sem gerir atvinnulífið mun samkeppnishæfara en ella og það hafa forsvarsmenn í atvinnulífinu nú þegar staðfest bæði í riti og í ræðum. Ég bendi því hv. þingmanni á þær staðreyndir sem þeir hafa dregið fram.