Aðgerðir í kjölfar verkfalls kennara.
menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):
Hæstv. forseti. Það er greinilegt að hv. þm. er pikkfastur í fortíðinni og gerir sér enga grein fyrir því hvernig fyrirkomulagi grunnskólamála er háttað í dag. Að sjálfsögðu hafa sveitarfélögin forræði á grunnskólunum. Þau undirstrika það sérstaklega og telja ekki æskilegt að miðstýrt boðvald komi frá menntamálaráðuneytinu þegar ábyrgðin er á þeirra vegum. Hv. þm. nefndi PISA-skýrsluna og það kemur akkúrat fram í niðurstöðum hennar að þau lönd sem ná hvað mestum framförum — og við erum að stefna að því að komast í fremstu röð — eru þau lönd sem leggja m.a. áherslu á minni miðstýringu af hálfu ríkisins þannig að sjálfstæði skólanna verði aukið. Það er akkúrat þannig sem ástandið er hér í landinu, sem betur fer eru ekki allir skólar hér á landi eins. Þeir hafa mismunandi hugmyndir um það hvernig hægt er að uppfylla kröfurnar um 170 daga skylduna. Ég vil líka benda hv. þingmanni á það að mörg sveitarfélög, ekki öll þó, hafa verið með 180 daga skólaskyldu. Þannig er nú það.
Það er á forræði sveitarfélaganna hvernig þau ætla að gera þetta. Þau vilja nota þau sérkenni og hugsanlega mismunandi aðstöðu til þess að bæta nemendum upp þá fjarveru sem þeir urðu fyrir vegna verkfallsins en að sjálfsögðu mun menntamálaráðuneytið sem fyrr hafa mjög öflugt eftirlit með því hvernig sveitarfélögin framkvæma það. Sveitarfélögin geta að sjálfsögðu ekki komist upp með að gera ekki allt sem í þeirra valdi stendur til að uppfylla þá lagaskyldu sem á þeim hvílir.