131. löggjafarþing — 53. fundur,  8. des. 2004.

Skráning og mat fasteigna.

335. mál
[18:07]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Úr því að hv. þm. vék að genginu þá tel ég fulla ástæðu til að spyrja að því hvort það sé hans mat, miðað við svarið, að gengi íslensku krónunnar verði líkt því sem nú er eða jafnvel að krónan eigi eftir að styrkjast enn frekar.

Ég vona að hv. þingmaður sé ekki búinn að tæma möguleika sína til að halda ræðu í þessu máli.