131. löggjafarþing — 53. fundur,  9. des. 2004.

Háskóli Íslands.

348. mál
[00:40]

Sigurður Kári Kristjánsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Sjálfstæðisflokkurinn er mjög heiðarlegur í þessu máli. Það er ljóst að við felum okkur ekki á bak við þá gjaldtöku sem hér er til umræðu með því að kalla hana röngum nöfnum. Hér eru ekki tekin upp skólagjöld í hefðbundnum skilningi slíkrar gjaldtöku, það er alveg ljóst.

Ég held að hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson sé hins vegar kominn út af sporinu. Ég veit að hv. þingmaður hefur stundað nám í útlöndum eins og ég. Hann veit hvernig skólagjöld eru innheimt erlendis og vegna hvaða kostnaðar, þ.e. út af kennslukostnaðinum. Hv. þingmaður, sem sat fundi menntamálanefndar eins og ég, heyrði rektora allra þeirra háskóla sem hér eru til umræðu, Kennaraháskólans, Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri, lýsa því hvað þeir teldu til skólagjalda. Þeir töldu það gjöld vegna kennslukostnaðar. Hv. þingmaður heldur því fram að það sé bara einhver misskilningur og hártoganir.

Ég verð að segja að mér finnst hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson vera kominn út af sporinu í þessu máli. Skilgreiningar hans á hugtakinu skólagjöld eru allt aðrar en viðteknar eru í menntakerfinu og í fræðasamfélaginu almennt. Þetta eru bara einhverjar nýjar kenningar sem gaman er að fá að heyra. Hins vegar er ljóst að ríkisstjórnin er ekki að innheimta skólagjöld heldur þjónustugjald vegna þjónustu sem tilgreind er í frumvarpinu. Í því felst ekki innheimta skólagjalda í klassískum skilningi.