131. löggjafarþing — 53. fundur,  9. des. 2004.

Háskóli Íslands.

348. mál
[00:42]

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Skólagjöld eru það. Það væri heiðarlegra og hreinlegra af Sjálfstæðisflokknum að viðurkenna það sem hann er að gera, bæði hvað varðar tækninámið og ríkisháskólana þrjá. Hann innleiðir skólagjöld á grunnnám á háskólastigi. Þar með gætu nemendur sótt um lán fyrir þeim gjöldum. Það væri mikið heiðarlegra af forustumönnum flokksins að horfast í augu við eigin gjörðir og viðurkenna þær í staðinn fyrir að vinna að málinu að tjaldabaki.

En ég hnaut um annað í ræðu hv. þingmanns sem mér þótti undarlegt. Hann fullyrti að það væri ekki stjórnvalda að hafa menntapólitíska forustu um hvort innheimta ætti skólagjöld eða ekki heldur væri það skólanna að óska eftir því. Þeir ættu að ákveða sjálfir hvort innleiða eigi skólagjöld eða ekki.

Skólagjöld á grunnnámi ríkisháskólanna eru meginbreyting á íslenskri skólapólitík og skólastefnu. Það er að sjálfsögðu stjórnvalda og stjórnmálamanna að veita þar pólitíska leiðsögn og forustu og taka ákvarðanir um slík stórmál. Ef það er markmið Sjálfstæðisflokksins að svelta skólana út í það horn að þeir hafi frumkvæði að því að óska eftir skólagjaldafrumvörpum eins og þeim sem við ræðum hér þannig að hægt sé að segja að það sé að ósk skólanna, þá er ákaflega undarlega að málum staðið.

Þegar einkaskólarnir, t.d. sjálfseignarstofnanirnar Bifröst og Háskólinn í Reykjavík, voru stofnsettir var það ákvörðun stjórnvalda að þeir skyldu fjármagna sig að hluta með skólagjöldum og þeim skyldi veitt heimild til að innheimta skólagjöld til að fjármagna hluta af starfsemi sinni. Það var pólitísk ákvörðun. Það er að sjálfsögðu stjórnmálamanna að hafa pólitíska forustu og taka slíkar grundvallarákvarðanir en velta þeim ekki yfir á aðra. Þeim ákvörðunum á ekki að velta yfir á þá sem reka skólana. Það er ekki þeirra að taka slíkar ákvarðanir, hvað þá í því ótrúlega fjársvelti sem þeir búa við, eins og skýrt kom fram í máli allra rektoranna í gær.