131. löggjafarþing — 54. fundur,  9. des. 2004.

Varamaður tekur þingsæti.

[10:01]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 6. þm. Suðurk., Hjálmari Árnasyni, dagsett 8. desember:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

Ísólfur Gylfi Pálmason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.