131. löggjafarþing — 54. fundur,  9. des. 2004.

Tekjuskattur og eignarskattur.

351. mál
[17:22]

Siv Friðleifsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er ósammála því sem fram kom hjá hv. þingmanni áðan að eignarskatturinn kæmi fyrst og fremst þeim til góða sem hefðu hæstu tekjurnar. Ég rakti í mínu fyrra andsvari að meginþungi eignarskattsins í dag lendir á þeim sem hafa 1,5 millj. kr. árstekjur eða minna, þar er meginþunginn. (Gripið fram í.)

Það er rétt að við höfum viljað hækka barnabætur og fara í ótekjutengdar barnabætur. En við höfum bara ákveðið svigrúm til skattalækkana, það er ekkert endalaust svigrúm, alls ekki, og þegar við sömdum við Sjálfstæðisflokkinn í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur þar skýrt fram hvernig við ætlum að nota svigrúmið. Hluti af svigrúminu fer í að lækka tekjuskatt um allt að 4%, það kostar 16 milljarða eða svo. Hluti fer í að lækka eignarskattinn og hluti fer í að hækka barnabæturnar. Það svigrúm sem fer í að hækka barnabæturnar er 2,4 milljarðar. Þetta er það svigrúm sem við höfum úr að spila.

Samfylkingin vill lækka matarskattinn. Það er ekki pláss fyrir það í því svigrúmi sem við höfum nema með því að taka eitthvað annað út úr. Það er því val hvernig maður notar svigrúmið. Við lögðum mjög mikla áherslu á að hækka barnabæturnar og það tókst með því að setja 2,4 milljarða í viðbót í barnabæturnar sem er sú tala sem við ræddum um í síðustu kosningabaráttu. Ég tel því að við getum verið mjög sátt við að hækka barnabæturnar með þessum hætti. Við erum reyndar búin að hækka þær um 4,5 milljarða frá árinu 2000 þannig að þetta er verulegt til viðbótar. Þetta er því spurning um val, hvernig maður nýtir svigrúmið og þetta er niðurstaðan.