Tekjuskattur og eignarskattur.
Sigurður Kári Kristjánsson (S) (andsvar):
Herra forseti. Ég held að búið sé að fara margoft yfir það hvers vegna skattalækkunum er hagað með þeim hætti sem frumvarpið kveður á um. Við vitum að það eru stóriðjuframkvæmdir á Íslandi og ýmislegt í gangi í atvinnulífinu sem hefur efnahagsleg áhrif. Hagfræðingar eru sammála um það, þar á meðal Guðmundur Ólafsson, lektor í hagfræði við Háskóla Íslands, að það sé beinlínis skynsamlegt að fara þá leið sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Séu breytingarnar til lækkunar á skatti framkvæmdar með þeim hætti sem frumvarpið fjallar um og gerir ráð fyrir eru þær ekki þensluhvetjandi eða verðbólguhvetjandi eða hafi slík áhrif sem við kærum okkur ekki um í efnahagslífinu. Hinar efnahagslegu ástæður, hin efnahagslegu skilyrði leiða til þess að menn ráðast í skattalækkunina með þessum hætti.
Af því að hv. þingmaður vék að þeim hamingjuóskum sem ég varpaði fram tel ég rétt að ítreka þær til hv. þingmanns, en þeim var ekki síður beint til allra landsmanna og skattgreiðenda, venjulegs fólks, venjulegra skattgreiðenda, vegna þess að þeir munu koma vel út úr skattalækkununum. Ég sýndi fram á það með konkret dæmum í ræðu minni. Ég tók t.d. dæmi af því að kaupmáttur kennarahjóna með fjögur börn mundi aukast um rúm 515 þús. kr. á ári við skattabreytingarnar. Hv. þm. Jóhanni Ársælssyni finnst það kannski lítið, en ég efast ekki um að þeim kennurum sem í hlut eiga finnst það bara býsna gott.