131. löggjafarþing — 54. fundur,  10. des. 2004.

Tekjuskattur og eignarskattur.

351. mál
[00:17]

Jón Gunnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ekki gekk hv. þm. Guðjóni Hjörleifssyni betur en öðrum stjórnarþingmönnum að verja þær skattahækkanir sem dunið hafa á okkur í hverju frumvarpinu á fætur öðru undanfarna daga. Hér talaði reyndur sveitarstjórnarmaður og fyrrum bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og eins og oft áður gat hann ekki látið vera að sveigja aðeins að Eyjunum í máli sínu. Það er ekkert við það að athuga, en sem vanur bæjarstjóri og rekstrarmaður veltir maður fyrir sér hvort hann hafi ekki lögum samkvæmt, eins og allir sveitarstjórnarmenn, þurft að gera svokallaðar þriggja ára áætlanir um rekstur og framkvæmdir sveitarfélagsins Vestmannaeyja.

Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er sú að mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvað þriggja ára áætlanir sem gerðar voru um rekstur og framkvæmdir í Vestmannaeyjum stóðust mikið þegar til átti að taka vegna þess að þrjú ár er ansi langur tími. Sá sem hér stendur hefur sjálfur staðið í þriggja ára áætlunargerð. Þingmaðurinn fór einnig yfir skattalækkanir og las mörg dæmi um það hvað hjón mundu njóta í skattafslætti árið 2007, ekki á næsta ári, ekki árið 2006 heldur árið 2007. Þetta er taktík sem stjórnarliðar hafa beitt óspart í dag, að lesa dæmi frá fjármálaráðuneytinu sem þeir hafa fengið útbýtt og fengið það verkefni að lesa á þinginu sem taka til skattalækkananna eins og þær líta út þegar þær eru að fullu komnar til framkvæmda árið 2007, ef ekkert annað breytist. Kom það aldrei fyrir hjá hv. þm. Guðjóni Hjörleifssyni að breyta þyrfti þriggja ára áætlunum sveitarfélagsins þegar hann stjórnaði því og trúir hv. þingmaður því að engu þurfi að breyta í þriggja ára áætlunum ríkisstjórnarinnar?