131. löggjafarþing — 54. fundur,  10. des. 2004.

Tekjuskattur og eignarskattur.

351. mál
[01:21]

Kjartan Ólafsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég sagði í ræðu minni að það skipti máli fyrir þingmenn að tala með jákvæðni og bjartsýni til fólks í landinu. Ég er bæði jákvæður og bjartsýnn gagnvart því máli sem hér hefur verið lagt fram og er verið að ræða. Ég hef fulla trú á því, herra forseti, að þau mál gangi eftir sem hér hafa verið kynnt síðasta sólarhring.