131. löggjafarþing — 54. fundur,  10. des. 2004.

Starfskjör launafólks og skyldutrygging lífeyrisréttinda.

321. mál
[01:41]

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður sem hér talaði situr einmitt við kjötkatlana það er hann sem fær valdið. Hann er nefnilega formaður stéttarfélags og er í þeim samtökum sem um er að ræða. Það er hann sem fær þetta vald til að semja og hafa áhrif á örlög annars fólks úti í bæ. (Gripið fram í.) Hann gerir það að sjálfsögðu af umhyggju fyrir þessu fólki, það er ekki spurning. Ég efast ekki um það en ég bendi hv. þingmanni á að það kynni að vera að þetta viðkomandi fólk missti vinnuna vegna þessarar afskiptasemi. Það getur vel farið þannig. Við þekkjum mörg dæmi þess sem er lítið talað um að erlent fólk hafi verið rekið úr landi vegna þess að gerðar voru athugasemdir við laun þess.

Kannski hefur enginn áhuga á því hvað verður um þetta fólk. Nei, það skal byggja undir vald verkalýðshreyfingarinnar og tryggja að hún geti samið í bakherbergjum um örlög fólks úti í bæ. (Gripið fram í: Þú vilt hafa það í hnappheldunni.)