131. löggjafarþing — 54. fundur,  10. des. 2004.

Starfskjör launafólks og skyldutrygging lífeyrisréttinda.

321. mál
[01:45]

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vona að sem flestir heyri helsta talsmann Sjálfstæðisflokksins í kjaramálum og tryggingamálum tala til launafólks og verja rétt óprúttinna manna til að svína á fátæku farandverkafólki.