131. löggjafarþing — 56. fundur, 10. des. 2004.
Frestun á fundum Alþingis.
433. mál
[17:52]
forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.
Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 10. desember 2004 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 24. janúar 2005.“
Tillaga þessi skýrir sig sjálf.