Innrásin í Írak og forsendur fyrir stuðningi íslenskra stjórnvalda.
Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):
Herra forseti. Því miður notar hæstv. forsætisráðherra ekki ærinn ræðutíma sinn til að fara skipulega og lið fyrir lið yfir atburðarásina þessa afdrifaríku sólarhringa, 17., 18., 19. og 20. mars. Þar er greinilega enn þá eitthvað sem verið er að baksast við að fela með þokukenndum frásagnarstíl eins og við heyrum hér.
Þegar hæstv. forsætisráðherra segir að við forðumst að ræða ástandið í Írak á dögum Saddams Husseins er þá gefið í skyn að 30 ára valdatími hans eða hvað það nú var hafi verið á okkar ábyrgð? Ekki var það ég sem studdi Saddam Hussein með ráðum og dáð og lét hann hafa vopn og peninga í ein 20 ár. Það voru bandamennirnir og vinirnir sem hæstv. forsætisráðherra vill líma sig upp við, Bandaríkjamenn og Bretar, sem gerðu það. Það er ekki á okkar ábyrgð. Ég fór reyndar yfir aðdragandann og rakti svolítið söguna í ræðu minni, að ég held einn manna.
Varðandi ályktun 1546 þá er hún að mínu mati gölluð. Hún var þvinguð í gegn til að gefa ástandinu í Írak yfirbragð lögmætis vegna þess að þar ríkti ólöglegt ástand. Innrásarher hafði í ólöglegu árásarstríði tekið völdin í landinu, hernumið landið. Þessar hörmungaraðstæður horfðust menn í augu við og allir vita að þessi ályktun var í raun þvinguð í gegn til að gefa þessu ástandi yfirbragð einhvers konar lögmætis.
Ég segi að innrásarher leiki lausum hala í landi þegar hann hegðar sér eins og bandaríski herinn gerði í Falluja, her sem fremur á nokkurra mánaða tímabili í tvígang stórfellda stríðsglæpi í stórborg, hann leikur lausum hala. Innrásarher sem pyntar fanga, hann leikur lausum hala.